Álfaskeið 96

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Álfaskeið 96
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
109,800000762939 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1965
Fermetraverð
636.612 kr.

Lýsing

RE/MAX og Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Álfaskeið 96. Eignin er samtals skráð 109,8 fm, þar af er 23,7 fm bílskúr.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu og bílskúr.

Hér er hægt að kíkja í 3D-heimsókn með því að smella hér.

Frekari upplýsingar um eignina veita Sigrún Matthea í síma 695-3502 eða á netfangið sms@remax.is Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490, gudrun@remax.is.

Nánari lýsing

Forstofa: Flísar á gólfi og fatahengi.

Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á svalir.

Eldhús: Rúmgott eldhús með fallegri hvítri innréttingu og góðu vinnu- og skápaplássi. Bakarofn er í vinnuhæð.

Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.

Svefnherbergi: Bjart herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, sturta, handlaug og veggskápar. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis með rými fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Geymslurými fylgir eigninni.

Bílskúr: Rúmgóður, 23,7 fm upphitaður bílskúr með heitu og köldu vatni. Bílskúrshurð er með rafdrifnum hurðaopnara.

Staðsetning

Eignin er á góðum og fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Leik- og grunnskólar, íþróttasvæði, matvöruverslanir og fjölbreytt verslun og þjónusta eru í næsta nágrenni. Þá er stutt í helstu stofnbrautir.

Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og rúmgóðum bílskúr á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490, gudrun@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.