Geitasandur 0

851 Hella

Ásett verð: 14.900.000 kr.

Geitasandur 0
Tegund
Lóð
Stærð
80000 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Fermetraverð
186 kr.

Lýsing

Um er að ræða átta hektara lóð í nágrenni Keldna á Rangárvöllum þar sem gróðursettur hefur verið fjölbreyttur trjágróður. Landið er í um eins og hálfs klukkustundar fjarlægð frá borginni. Hér er tækifæri að eignast leigurétt á stóru frístundalandi á einstökum stað fyrir lítið.

Af lóðinni er útsýni til Heklu, Tindfjalla og Þríhyrnings og er lóðin í jaðri svæðisins við Langöldu.

Deiliskipulag á svæðinu gerir ráð fyrir 150 fm húsi á einni hæð auk geymslu, 30 fm gestahúsi og gróðurhúsi. Landið er í eigu ríkisins og er langtímasamningur um leigu sem er innan við 50 þúsund á ári án húss, en rúmlega 160 þús ef byggt er á lóðinni. Upphaflegt markmið á svæðinu var landgræðsla og skógrækt og að mynda heildstætt frístundasvæði.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali as@hofdi.is, Gsm 895 3000