Kópalind 4

201 Kópavogur

Ásett verð: 98.900.000 kr.

Kópalind 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
122,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1998
Fermetraverð
808.667 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir fallega og rúmgóða endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi á þessum vinsæla stað í Kópavogi. Um er að ræða 122,3 fm fjögurra herbergja íbúð með um 40fm. sólpalli út frá stofu. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, hjónaherbergi, tvö rúmgóð barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús, sérgeymslu og sólpall.

Nánari lýsing:

Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum, flísar á gólfi.

Eldhús: Bjart eldhús, opið á tvo vegu. Innrétting með góðu skúffu- og skápaplássi, efri skápar og flísar milli innréttinga. Siemens blástursofn og helluborð.

Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa í opnu rými, útgengt út á stóran sólpall sem snýr í vestur.

Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskápum.

Barnaherbergi 1: Stórt svefnherbergi með fataskápum.

Barnaherbergi 2: Inn af forstofu er gott herbergi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, sturta, baðkar, upphengd innrétting og klósett.

Þvottahús: Innan íbúðar er um 5fm. þvottahús með góðu vinnuborði.

Sérgeymsla: Eigninni tilheyrir 6,4fm. geymsla ásamt sameiginlegri hjólageymslu.

Sólpallur: Út frá stofu er gengið út á stóran sólpall (um 40fm.) sem snýr í vestur.

Húsið Kópalind 2-4 hefur fengið gott viðhald :

Þakið á húsinu var yfirfarið og málað 2020 ásamt þakköntum.

Allir gluggar, svalahurðir og vatnsbretti voru máluð utanhúss árið 2020.

Farið var í múrviðgerðir þar sem við átti og allt húsið málað að utan sumarið 2025.

Hleðslustöðvar settar fyrir utan húsið 2025.

Nýtt hitakerfi í tröppur og þær steyptar upp á nýtt sumarið 2026.

Falleg eign á eftirsóttum stað í Lindahverfinu, stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

Nánari upplýsingar gefa:

Börkur Hrafnsson lögg. fasteignasali í síma 8924944, borkur@fastborg.is

Úlfar Þór Davíðsson lögg. fasteignasali í síma 7889030, ulfar@fastborg.is