Skyggnisbraut 14

113 Reykjavík

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Skyggnisbraut 14
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
125 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
719.200 kr.

Lýsing

Erling Proppé & REMAX kynna í sölu: Bjarta, mjög rúmgóða og fallega þriggja herbergja 125,0 fm. íbúð á þriðju hæð ásamt stæði í bílgeymslu í nýlegu lyftuhúsi á góðum stað við Skyggnisbraut 14, Reykjavík.

-//- Stór herbergi - möguleiki á að bæta við 1-2 herbergjum.

-//- Stór stofa

-//- Geymsla innan íbúðar

-//- Stæði í bílageymslu, búið að leggja að stæði fyrir hleðslustöð

*** FASTEIGNAMAT NÆSTA ÁRS 92.350.000,- ***

Allar frekari upplýsingar: Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is

Skv. FMR er eignin skráð 125 fm með geymslu innan íbúðar.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri, hol, geymslu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu- og borðstofu ásamt eldhúsi. Tvennar svalir. Sérsniðnar gardínur í öllum gluggum.

Andyri er parketlagt með fataskáp.

Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum, útgengt út á svalir og parket á gólfum.

Svefnherbergi er mjög rúmgott með skápum, parket á gólfum.

Eldhús er bjart og rúmgott, hvítar háglans innréttingar, bakaraofn í vinnuhæð, span helluborð, vifta og innbyggð uppþvottavél. Einnig er búið að setja upp bar í eldhúsi með vínkæli og stein á borðum.

Stofa og borðstofa er eitt stórt rúmgott rými, búið er að setja upp panel á sjónvarpsvegg með baklýsingu sem fylgir eigninni, parket á gólfum og útgengt út á svalir.

Baðherbergi er með hvítri innréttingu, handklæðaofni, upphengdu salerni og sturtu. Innrétting og tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum.

Geymsla er innan íbúðar.

Bílastæði fylgir eign í bílageymslu, búið er að leggja að stæði fyrir hleðslustöð.

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða rúmgóða eign, staðsett í nýlegu og vinsælu hverfi í Úlfársdal. Stutt er í leikskóla- og grunnskóla, íþróttafélagið Fram og fallega náttúru.

Vegna mikilla umsvifa á fasteignamarkaðinum óska ég eftir öllum eignum á skrá, vönduð vinnubrögð og frítt skuldbindingarlaust verðmat !

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is

Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.