Tjarnabraut 2

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 62.900.000 kr.

Tjarnabraut 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
82 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
767.073 kr.

Lýsing

Rúmgóð og björt fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi með sérinngang af stigapalli og sér merktu bílastæði við Tjarnabraut 2 í Innri Njarðvík. Innréttingar eru frá Parka, eldhúsinnréttingar með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Alrými íbúðarinnar er bjart, þar eru stofa og eldhús í opnu rými.Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Þvottaaðstaða er innan íbúðar. Gólfhiti er í eigninni. Lagt er fyrir rafhleðslu við öll stæði auk þess sem tvær hleðslustöðvar eru uppsettar á lóð.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 82,0 fm. og þar af er geymsla íbúðar 4,6 fm.

Fasteignamat fyrir árið 2027 verður 58.600.000kr.

Nánari lýsing eignar:

Anddyri með fataskáp og parket á gólfi.

Stofu rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á góðar svalir úr stofunni.

Eldhús er opið við stofu með fallegri innréttingu, innbyggður ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, span helluborð, gufugleypir og gott borðpláss. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Svefnherbergi II með fataskáp og parket á gólfi

Svefnherbregi III með fatsskáp og parket á gólfi.

Baðherbergi með innangengri sturtu, góð innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn. Inn á baðherbergi er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluti veggja.

Geymsla íbúðar er skráð 4,6fm og er á jarðhæð hússins.

Tjarnabraut 2

Glæsilegt staðsteypt hús sem er einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar úr álklæddu timbri. Stétt við innganga er hellulögð og gönguleiðir með snjóbræðslukerfi. Bílastæði eru malbikuð og á lóð er hjólaskýli.

Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla ásamt verslun og þjónustu. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is