Tjarnargata 10

101 Reykjavík

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Tjarnargata 10
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
113,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1934
Fermetraverð
790.677 kr.

Lýsing

Lind fasteignasala ehf. og Viðar Marinósson - vidar@fastlind.is, 8984477 kynnir 4ra herbergja mikið endurnýjaða íbúð á 3ju hæð á besta stað við tjörnina - Tjarnargata 10, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-01.

Eignin Tjarnargata 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-2805, birt stærð 113.7 fm. þar af 8,4 fm. geymsla í kjallara

Íbúðin skiptist í forstofu/gang, eldhús, borðstofu, stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, herbergi/sjónvarpsstofu og baðherbergi. Útgengt er á svalir frá eldhúsi og sérgeymsla fylgir í kjallara.

Úr íbúðinni er einstakt og fallegt útsýni yfir Tjörnina og að Ráðhúsinu. Næg bílastæði eru í nærliggjandi götum auk bílastæðahúss í Ráðhúskjallara.

Íbúðin er laus til afhendingar strax eða samkvæmt nánara samkomulagi. Gengið inn frá Vonarstræti

Nánari lýsing :

Forstofa/Gangur: Komið er inn á flísalagðan gang með fallegum náttúrusteini á gólfi og góðu fatahengi.

Borðstofa: Rúmgóð og björt borðstofa með glugga út að svölum. Massíft parket er á gólfi. Borðstofan er opin inn á ganginn og er skráð sem 8,4 fm. herbergi á teikningum eignarinnar. Einfalt að breyta aftur í herbergi ef þörf er á því.

Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp og massífu parketi á gólfi.

Barnaherbergi: Notalegt barnaherbergi með fataskáp og massífu parketi á gólfi.

Stofa: Falleg og björt stofa með stórum gluggum sem veita einstakt útsýni yfir Tjörnina og að Ráðhúsinu. Massíft parket á gólfi.

Herbergi/Stofa: Rúmgott og fjölnota herbergi með massífu parketi á gólfi sem nýtist ýmist sem svefnherbergi eða stofa. Í dag er rýmið nýtt sem stækkun á stofu og skapar þannig opið og bjart alrými.

Eldhús: Fallegt og nýlega endurnýjað eldhús með vandaðri innréttingu frá GKS. Innbyggð heimilistæki, þar á meðal ísskápur með frysti, uppþvottavél og þvottavél með þurrkara, fylgja með eigninni. Spanhelluborð og ofn. Náttúrusteinn og parket á gólfum. Frá eldhúsi er útgengt á svalir.

Baðherbergi: Smekklega innréttað baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta veggja. Sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og ný ljósgrá baðinnrétting sem gefur rýminu fallegt og nútímalegt yfirbragð.

Geymsla í kjallara.

Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og bjarta íbúð á einum eftirsóttasta stað miðborgarinnar þar sem stórkostlegt útsýni yfir Tjörnina og að Ráðhúsinu setur einstakan svip á eignina. Eign sem vert er að skoða.

Inga Sigurjónsdóttir arkitekt hjá studiohring sá um innanhúshönnun á íbúðinni.

Allar upplýsingar um eignina veitir Viðar Marinósson í síma 8984477 og vidar@fastlind.is

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð .