Bæjarlind 7

201 Kópavogur

Ásett verð: 101.900.000 kr.

Bæjarlind 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
127,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2017
Fermetraverð
796.716 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega, vel skipulagða og rúmgóða 127,9 m2 3ja herbergja íbúð á 3.hæð í lyftuhúsi á þessum frábæra stað við Bæjarlind 7 í Lindarhverfi Kópavogs. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Tvennar svalir . Suður og austur svalir. Eignin skiptist forstofu, forstofugang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, og sérgeymslu í sameign.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa með flísalögðu gólfi .

Forstofugangur með harðparketi á gólfi og fataskáp.

Eldhúsið er opið inn í stofu með vönduðum innréttingum frá AXIS með eyju, steinborðplötum og innbyggðri uppþvottavél , tveir ofnar í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, harðparket á gólfi, útgengt út á rúmgóðar svalir til austurs.

Stofa og borðstofa er opið og bjart rými með harðparketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir til suðurs.

Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta til, walk-in sturta með glerþili, falleg innrétting frá AXIS með handlaug/vask, vegghengt salerni, opnanlegur gluggi.

Hjónaherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum, útgengi út á svalir til austurs.

Svefnherbergi tvö er rúmgott með harðparketi á gólfi ( fataskápur er til en óuppsettur )

Þvottahús með vinnuborði og skolvaski, efri og neðri skápar og flísar á gólfi.

Geymsla: 10,7 m2, staðsett í sameign.

Bæjarlind 7 er á einstaklega góðum stað í hjarta Lindahverfis. Í rólegu og vel skipulögðu íbúðahverfi. Í næsta nágrenni eru fallegar göngu- og hjólaleiðir. Leiksvæði og græn svæði sem gera umhverfið fjölskylduvænt og þægilegt.

Stutt er í alla helstu þjónustu; grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði og verslun. Smáralind og Smáratorg eru í örstuttri fjarlægð með öllu sem daglegt líf krefst.

Frábær tenging er við stofnbrautir og almenningssamgöngur, sem gerir staðsetninguna mjög hentuga fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga.

Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is