Skyggnisbraut 30

113 Reykjavík

Ásett verð: 63.900.000 kr.

Skyggnisbraut 30
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
76,9 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2016
Fermetraverð
830.949 kr.

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja 76,9 fermetra íbúð á 5. hæð með gríðarlega fallegu útsýni og austursvölum í góðu fjölbýlishúsi með lyftu við Skyggnisbraut í Reykjavík. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í opinni bílageymslu þar sem lagt hefur verið fyrir hleðslustöð.

Einstakt útsýni er frá stofu, eldhúsi og svefnherbergi yfir Úlfarsfell, að Nesjavöllum, Bláfjöllum og víðar.

Lýsing eignar:

Forstofa / hol, parketlagt og rúmgott með fataskápum.

Baðherbergi, mjög rúmgott, flísalagt gólf og veggir, flísalögð sturta, vegghengt wc., handklæðaofn og innrétting. Í baðherbergi er mjög góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.

Svefnherbergi, stórt, parketlagt og með miklum fataskápum.

Stofa, mjög björt, rúmgóð og parketlögð með gluggum í tvær áttir og virkilega fallegu útsýni að Úlfarsfelli og víðar.

Eldhús, opið við stofu, parketlagt og rúmgott með fallegri ljósri viðarinnréttingu með innbyggðri uppþvottavél. Góð borðaðstaða er í eldhús og útgengi á svalir til austurs með útsýni að Nesjavöllum, Bláfjöllum, Úlfarsfelli og víðar.

Í kjallara hússins eru:

Sérmerkt bílastæði í opinni bílageymslu þar sem lagt hefur verið fyrir hleðslustöð.

Sérgeymsla, 8,5 fermetrar að stærð.

Sameiginleg hjólageymsla, mjög rúmgóð og snyrtileg.

Húsið að utan lítur vel út og sameign hússins er öll mjög góð og vel umgengin.

Lóðin er fullfrágengin , stór og sameiginleg með húsunum nr. 26-30 við Skyggnisbraut. Góð aðkoma er að húsinu og fjöldi bílastæða á malbikuðu bílaplani fyrir framan hús. Hellulagðar gangstéttir og tyrfðar flatir.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á endalóð við opið grænt svæði og útsýni frá eigninni er virkilega fallegt. Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is