Óðinsstígur 6

805 Selfoss

Ásett verð: 63.900.000 kr.

Óðinsstígur 6
Tegund
Sumarhús
Stærð
106,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
598.875 kr.

Lýsing

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Glæsilegt sumarhús við Óðinsstíg í landi Ásgarðs í Grímsnesi. Um er ræða 106,7 fm nýtt hús með steyptri plötu (heilsárshús) á eignarlandi. Í þessu húsi er gólfhitakerfi með stýringu fyrir gólfhita (vatn í loft). Blæs lofthita um gólfin. Húsið er klætt með bandsöguðu efni og gluggar eru ál/tré. Heitur pottur. Húsið er hitað með varmadælu. -

// Svefnpláss fyrir 7 manns.

// Hægt að hafa mjög góðar leigutekjur.

// Frábær staðsetning.

// Stór pallur með heitum potti.

// Stutt í alla þjónustu.

Lýsing á eign:

Forstofa: Er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.

Eldhúsið og stofan: Eru í sama rými með góðri lofhæð og parketi á gólfi. Útgengi úr stofu út á suð/vestur sólpall. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og vönduðum tækjum.

Baðherbergið: Er flísalagt í hólf og gólf með fallegum hvítum innréttingum, þvottavél og sturtu. Útgengi út á suður sólpall.

Herbergisgangur: Er með parketi á gólfi.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og með fataskáp.

Herbergi 1: Er með parket á gólfi og fataskáp.

Herbergi 2: Er með parket á gólfi.

Stór sólpallur með skjólgirðingu og heitur pottur (rafmagnspottur).

Stórt bílastæði – einnig stæði fyrir hjólhýsi.

Stutt í þjónustu, veitingastaði, golfvelli og fjölbreytta afþreyingu í næsta nágrenni.

Þetta er einstaklega skemmtileg eign í frábæru umhverfi sem bíður upp á góða möguleika til útivistar og afslöppunar allt árið um kring.

Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.