Höfðagata 29

340 Stykkishólmur

Ásett verð: 29.900.000 kr.

Höfðagata 29
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
71 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1946
Fermetraverð
421.127 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir löggiltur fasteignasali kynna til sölu frábærlega staðsetta og vel skipulagða íbúð við Höfðagötu 29 í hjarta Stykkishólms. Eignin sem er á jarðhæð í tvíbýlishúsi byggt er árið 1946 er 71 fm og skiptist í forstofu, gang, svefnherbergi, stofu, baðherbergi og geymslu.

Nánari lýsing:

Gengið er inn af snyrtilegum nýlegum viðarpalli inn í eignina. Forstofa með flísum á gólfi og þaðan inn í hol með parketi á gólfi.

Stofa með parketi á gólfi

Eldhús með ágætri eldri innréttingu og tækjum. Flísar á gólfi.

Baðherberg i með flísum á gólfi, sturtu, salerni, handklæðaofni og hvítri innréttingu.

Svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskáp.

Innaf gangi er sameign sem skiptist í geymslur og þvottahús sem er því sem næst upprunalegt. Lítil sérgeymsla fylgir eigninni.

Annað:

Eignin hefur hlotið gott almennt viðhald í gegnum tíðina og hefur veirð gert eftirfarandi skv.seljanda:

Skipt var um glugga á vestur og suðurhlið á eigninni 2019. Austurhlið 2012.

Húsið klætt að utan og þak endurnýjað fyrir ca. 8-10 árum

Ofnar, ofnalagnir og neysluvatnslagnir nýlega endurnýjað.

Ný rafmagnstafla.

Rafmagn endurnýjað í eldhúsi og annað rafmagn endurnýjað að hluta

Örstutt er í alla þjónustu svo sem skóla, íþróttamiðstöð, verslun og Hólmgarðinn fagra. Afbragðs útsýni er frá eigninni til fjalla m.a.

​​​​​​Hér er á ferð vel skipulögð eign á besta stað sem býður upp á ýmsa möguleika.

Frábær tækifæri sem fyrsta eign eða fyrir þá sem vilja eignast afdrep í Hólminum fagra.

Hafðu samband við Bjössa og bókaðu skoðun því sjón er sögu ríkari!

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.