Vetrarbraut 2 - íbúð 212

210 Garðabær

Ásett verð: 114.900.000 kr.

Vetrarbraut 2 - íbúð 212
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
119,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
961.506 kr.

Lýsing

Vetrarmýri er nýtt og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, svansvottaðar með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Íbúðin er laus við kaupsamning.

Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Gunnar Bergmann Jónsson, Löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is

Opinber skráning eignar:

Íbúð merkt 02-12 er vönduð 3 herbergja íbúð. Fastanúmer eignar: 253-4874. Birt flatarmál er 119.5 fm með svölum og sérgeymslu í sameign. Bílastæði fylgir íbúðinni ásamt því er einnig 13,5 fm frístundaskúr. Íbúðin er á horni lóðarinnar og hefur fallegt útsýni út úr alrými eignarinnar. Mjög rúmgott alrými, sér þvottahús og tvö baðherbergi. Góð vinnuaðstaða í eldhúsi með eyju og fallegri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.

Tölvumyndir eru af sýningaríbúðum.

**Sækja söluyfirlit**

**Heimasíða verkefnis**

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.