Brimklöpp 5

250 Garður

Ásett verð: 87.500.000 kr.

Brimklöpp 5
Tegund
Einbýlishús
Stærð
191,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Fermetraverð
456.442 kr.

Lýsing

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu vandað einbýlishús í byggingu við Brimklöpp nr. 5 í Garði, Suðurnesjabæ.

Birt stærð eignarinnar er 191,7fm, þar af er innbyggður bílskúr 37,5fm. Fastanúmer eignar er 233-2935.

Eignin skilast samkvæmt skilalýsingu rúmlega fokheld að innan og fullbúin að utan með tyrfðri lóð, steyptri stétt og innkeyrslu og verönd á lóð.

Um er að ræða vel skipulagt og vandað einbýlishús sem samkvæmt teikningum skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og þvottahús ásamt bílskúr.

Möguleiki er að kaupa eignina fullfrágengna að innan eftir samkomulagi við seljanda.

*Eignin skilast fullfrágengin að utan samkvæmt skilalýsingu seljanda dags.10.02.2026.

*Öll gólf verða flotuð, heimtaugar fyrir rafmagn, hitaveitu og vatnsveitu komnar inn í hús og loft verða einangruð og plöstuð.

*Húsið er staðsteypt og gluggar og útidyrahurðir eru úr timbri/áli.

*Eignin er einangruð og klædd að utan með standandi álklæðningu.

*Lóð er fullfrágengin með torfi, steypt plan og stéttar með snjóbræðslulögn, sorptunnuskýli og verönd á lóð.

*Stutt er í skóla og leikskóla. Falleg náttúra er allt um kring og stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.

*Nýtt og glæsilegt hverfi sem byggt er upp á snyrtilegan hátt.

*Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður lagt á sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignar.

Byggingaraðili:

Bragi Guðmundsson ehf. - er húsbyggjandi og ábyrgðaraðili verksins. Framúrskarandi og traustur verktaki með áratuga reynslu.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Magnússon lfs.

S: 420-4000 / 863-4495 - dori@studlaberg.is