Bræðraborgarstígur 24

101 Reykjavík

Ásett verð: 84.900.000 kr.

Bræðraborgarstígur 24
Stærð
80,7 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1906
Fermetraverð
1.052.045 kr.

Lýsing

Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna 80.7 fm (Nettó gólflötur eignar er 92,8fm skv. fasteignaskráningu.), 5 herbergja hæð og ris með sérinngangi ásamt sérmerktu bílastæði í tvíbýlishúsi vinsælum stað í gamla Vesturbænum. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, geymslurými undir stiga, eldhús, samliggjandi borðstofu og stofu á aðalhæð. Aukin lofthæð er á aðalhæðinni sem býður upp á afskaplega falleg og hlýleg rými. í risi eru 2 barnaherbergi, gangur og rými sem getur nýst afar vel sem leikrými fyrir börn, gott gólfpláss með lægri lofthæð.

Húsið stendur á fallegri og gróinni 227,1fm eignarlóð. Tvö bílastæði eru á lóðinni, bílastæðið sem er nær húsinu tilheyrir íbúð í kjallara en bílastæðið sem er fjær húsinu tilheyrir íbúð á fyrstu hæð. Fyrir aftan hús er sameiginlegur sólríkur garður með sameiginlegri viðarverönd. Í garði er kaldur, timbur geymsluskúr sem tilheyrir efri hæðinni skv. hefð og er ekki skráður inn í birta fermetratölu eignarinnar.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Staðsetningin eignarinnar er ákaflega eftirsóknarverð, enda sameinar hún sjarma og ró gamla Vesturbæjarins við líf og þægindi miðborgarinnar. Þá er Grandinn og gamla höfnin stutt undan. Skólar á öllum stigum í nágrenninu ásamt fjölbreyttu tómstundar- og íþróttastarfi. Öll helsta verslun og þjónusta í nánasta nágrenni.

Eignin Bræðraborgarstígur 24 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-1119, birt stærð 80.7 fm. Nettó gólflötur eignar er 92,8fm skv. fasteignaskráningu.

Framkvæmdir undanfarinna ára:

2019:

Hitagrind tekin í gegn (ofnakerfi)

2020:

Hús málað að utan og múrviðgert.

Lagnir myndaðar. Plastlagnir í fínu lagi. Lögn frá lóðarmörkum út í götu fóðruð við samskeyti.

2021:

Þakrennur endurnýjaðar.

2026:

Fannst veggjatítla í hluta af þakvið. Skipt um stóran hluta af þakvið, þakjárn og þakpappi endurnýjaður ásamt því að setja öndunarrör í þak. Einnig var eitrað af meindýraeyði.

Eignin skiptist í:

Aðalæð: Anddyri, baðherbergi, geymsla undir stiga, hjónaherbergi, samliggjandi eldhús, borðstofa og stofa.

Rishæð: 2 barnaherbergi, gangur, leikherbergi / geymsla.

Nánari lýsing eignarinnar:

Hæð:

Anddyri: Gengið inn um sérinngang. Flísar á gólfi, fatahengi. Stigi úr forstofu upp í rishæð.

Baðherbergi: Uppgert fyrir um 10 árum. Flísar á gólfi og stórum hluta veggja. Upphengt salerni, baðkar með sturtu, handklæðaofn, vaskur og spegill fyrir ofan vask. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Innbyggður skápur.

Hjónaherbergi: Rúmgott með innbyggðum opnum fataskáp.

Eldhús: Falleg upprunaleg innrétting með góðu skápaplássi. Samliggjandi borðstofu.

Borðstofa: Samliggjandi eldhúsi og stofu.

Stofa: Samliggjandi og opin inn í borðstofu.

Ris:

Barnaherbergi I: Viðarplankar á gólfi, rennihurð.

Barnaherbergi II: Parket á gólfi, stór gólfflötur. Nýtist vel sem barnaherbergi.

Leikstofa / geymsla: Undir súð. Lofthæð í hæsta punkti ca. 175cm. Opin og nýtt í dag sem leikstofa.

Lóðin er 227,1 m² eignalóð við Bræðraborgarstíg 24 í Reykjavík, á lóðinni stendur mhl. 01 við Bræðraborgarstig 24. Tvö bílastæði eru á lóðinni, bílastæðið sem er nær húsinu tilheyrir íbúð í kjallara en bílastæðið sem er fjær húsinu tilheyrir íbúð á fyrstu hæð. Kaldur viðarskúr stendur á vesturenda í garði og tilheyrir hann efri hæð skv. hefð.

Sameign allra Í matshluta 01 er í sameign allra, inntök (0002) tröppur (0003) og sorp (0004) í kjallara, einnig tröppur (0102) á fyrstu hæð. Einnig er í sameign allra allt ytra byrði hússins. Eignahlutar skiptast eftir hlutfallstölu sameignar allra. Eignahlutfall eignar er 63,91%.

Hita og rafmagnskostnaður Í húsinu er einn hitamælir og skiptist kostnaður eftir hlutfallstölu hitakostnaðar. sameignarrými (0002) er ekki upphitað, geymsla (0201) er ekki upphituð. Hitamælir er staðsettur í inntaksklefa (0002). Íhúsinu eru tveir rafmagnsmælar þ.e. einn fyrir hvora séreign.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is