Hrannarstígur 4
350 Grundarfjörður
Ásett verð: 29.900.000 kr.

- Stærð
- 140 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1958
- Fermetraverð
- 213.571 kr.
Lýsing
108 fm. íbúð á efri hæð í steinsteyptu tvíbýlishúsi byggðu árið 1958 ásamt 32 fm. steinsteyptum bílskúr byggðum árið 1972.
Íbúðin, sem er með sérinngangi, skiptist í stigagang, stigapall, hol, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og stofu. Þá er sameiginlegt þvottahús á neðri hæð og er þar útihurð. Svalir eru út af stofu.
Flísar eru á stiga, stigapalli og baðherbergi en parket á öðrum gólfum.
Ágætar innréttingar eru í íbúðinni. Baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað og eru gólf og veggir flísalagðir og öll tæki eru nýleg.
Nýjir gluggar eru á baðherbergi og einu herbergi.
Varmadæla er í holi og ofnar í herbergjum og stofu.
Að utan er húsið klætt með stálklæðningu er farið að sjá aðeins á henni. Þá vantar klæðningu á neðri hæð á norðurhlið. Járn á þaki hefur verið endurnýjað.
Bílskúr er ekki upphitaður en í enda hans er geymsla og útihurð. Bílskúrshurð er orðin léleg.
Húsið er vel staðsett miðsvæðis í Grundarfirði.