Furugrund 46

200 Kópavogur

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Furugrund 46
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
87,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1974
Fermetraverð
797.035 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala / Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali kynnir mikið uppgerða og bjarta 87,7 fm þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með 12,3 fm aukaherbergi í kjallara sem er í útleigu ásamt ca 7 fm geymslu sem ekki er inni í heildar fermetratölu við Furugrund 46 í Kópavogi.

Útleiguherbergið er staðsett undir svefnherbergi og er því hægt að opna á milli herbergjanna, eins er aðgengi að salerni í kjallara. Nýbúið er að endurnýja þakpappa, þakplötur, timbur, flasningar, niðurföll, rennur og þaktúður. Nýleg gólfefni eru í allri íbúðinni, baðherbergi var tekið í gegn að mestu 2021-2022, nýlegir fataskápar í herbergjum og á gangi, nýr ofn í stofu og nýir tenglar og innstungur innan íbúðar. Rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs, snyrtilegt þvottahús er í sameign, stór sameiginlegur garður á bakvið hús og eitt merkt stæði á bílaplani. Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi, en m.a. er Fossvogsdalurinn, grunn- og leikskóla í göngufæri.

Eignin skiptist í: Forstofu, borðstofu/stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, útleiguherbergi og geymslu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Parket á gólfi, fatahengi.

Eldhús: Parket á gólfi, hvít innrétting með grárri borðplötu og góðu skápaplássi, span helluborð.

Stofa/borðstofa: Björt og opin, útgengt á svalir sem snúa til suðurs.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, hvít innrétting, speglaskápur, sturta.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur.

Svefnherbergi: Parket á gólfi, nýlegur innbyggður fataskápur.

Geymsla: Í kjallara, ca 7 fm ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.

Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í síma 847 8584 / tara@fastlind.is

​​​​​​

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.