Akrakór 10

203 Kópavogur

Ásett verð: 210.000.000 kr.

Akrakór 10
Tegund
Einbýlishús
Stærð
311,9 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
2008
Fermetraverð
673.293 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir glæsilegt einbýlishús að Akrakór 10, Kópavogi. Um er að ræða vel hannað hús á tveimur hæðum. Arkitekt hússins er Helgi Hjálmarsson. Eignin er skráð 311.9 fm. að stærð. Húsið er fallegt og sérlega vel skipulagt með mikilli lofthæð í flestum rýmum og gólfhita. Sérsmíðaðar innréttingar eru í öllu húsinu og innfelld lýsing víða í loftum. Öll rými eru rúmgóð og frá borðstofu er útgengt á stóran afgirtan pall. Svefnherbergin (5-6) eru rúmgóð og er fataherbergi staðsett inn af hjónaherbergi. Eignin skiptist í efri hæð. Forstofa, gestasnyrting, svefnherbergi/skrifstofa stór stofa og stórt eldhús.

Neðri hæð. Sjónvarpsrými/stofa. Hjónaherbergi, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi og þvottaherbergi. Rúmgóður, 40 fermetra bílskúr.

Lóðin er 894,0 fermetrar að stærð. Heimreiðin er rúmgóð fyrir framan hús og rúmar margar bifreiðar. Það á eftir að helluleggja eða steypa heimreið. Útgengi úr borðstofu á stóra viðarverönd sem er afgirt.

Nánari lýsing:

Gengið er inn á efri hæð.

Efri hæð

Forstofa: Flísar á gólfi, skápar, aukin lofthæð og innfelld lýsing.

Skrifstofa/svefnherbergi. Rúmgott 16,9 fm herbergi. Parket á gólfi.

Gestasnyrting: Með flísum á gólfi og veggjum. Salerni, vaskur.

Stofa/ Borðstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og mikilli lofthæð. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Innfelld lýsing í loftum. Útgengi á verönd frá borðstofu.

Verönd / pallur: Útgengt er út á glæsilegan 100 fm pall með pergúlu, kofa og smíðuðum hornbekk.

Eldhús: Með flísum á gólfi og afar fallegri sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu með stórri eyju og tækjaskáp. Stál bakaraofn, háfur, stórt helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Aukin lofthæð, innfelld lýsing í loftum. Eldhús er opið við alrými (stofur).

Neðri hæð.

Sjónvarpsherbergi/stofa. Flísar á gólfum. Mjög rúmgott opið rými.

Tvö baðherbergi: Annað inn af hjónaherbergi. Það er ekki fullbúið en búið er að flísaleggja. Hitt er með með flísum á gólfi og veggjum. Sérsmíðaðar innréttingar og innfelld lýsing. Baðkar með sturtutækjum og rúmgóð flísalögð sturta.

Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi og innfelldri lýsingu í loftum.

Fataherbergi: Er staðsett inn af hjónaherbergi.

Svefnherbergi 1: Er Rúmgott með parketi á gólfi, skáp.

Svefnherbergi 2: Er rúmgott, með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.

Svefnherbergi 3 og 4. Eru hvort um sig í kringum 8 fm. Liggja samsíða og auðvelt að sameina þau í eitt stórt. Parket á gólfum.

Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og góðri innréttingu (hækkun undir þvottavél og þurrkara). Flísalögð sturta, vaskur og útloftun.

Bílskúr: Er 40 fermetrar að stærð. Inngengt frá forstofu. Innrétting, vaskur (heitt/kalt vatn).

Nánari upplýsingar veita :

Úlfar Þór Davíðsson, í síma 788-9030, tölvupóstur ulfar@fastborg.is

Börkur Hrafnsson , í síma 8924944, tölvupóstur borkur@fastborg.is.

Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.