Mánagata 7

105 Reykjavík

Ásett verð: 57.000.000 kr.

Mánagata 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
52 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1936
Fermetraverð
1.096.154 kr.

Lýsing

Mikið endurnýjuð, björt og falleg tveggja herbergja íbúð á efri hæð í þriggja íbúða húsi í Norðurmýrinni. Stofa og eldhús í opnu rými, nýlega endurnýjað baðherbergi. Mjög góð eign á friðsælum stað í miðborginni.

Upplýsingar gefur Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@remax.is

Stigahúsið er bjart með stórum glugga og uppgerðum gólfdúk, fallegt handrið.

Í forstofu eru innfelldir skápar og svalahurð.

Fallegt parket á gólfum, hvítar innihurðir.

Svefnherbergi er með hornglugga og góðu skápaplássi.

Stofan og eldhúsið eru í sameiginlegu björtu rými .

Í eldhúsi eru eikarskápar í innréttingu, dökk borðplata og opnanlegur gluggi. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt.

Baðherbergið er nýlegt með gráum flísum, „walk in“ sturtu og opnanlegum glugga.

Í kjallara er sameiginlegt þurrkherbergi og þvottahús þar sem gert er ráð fyrir sér þvottavél.

Köld útigeymsla undir tröppum og geymsluloft yfir íbúðinni.

Endurbætur:

Fyrir 4 – 5 árum var sett ný rafmagnstafla í eldhús, nýjar neyrsluvatnslagnir, gólfhiti, Nýjar hurðir og nýjir gluggar í hluta íbúðar. Stýrikerfi fyrir gólfhitann var endurnýjað fyrir ári síðan.

Fyrir 1 – 2 árum voru endurnýjaðar skolplagnir innanhúss. Sameignin máluð ásamt veggjum og gólfi í þvottahúsi. Nýr slaufuloki og mælir fyrir á grind fyrir allar íbúðirnar var gert á sama tíma.

Fyrir 1 ári sett ný svalahurð.

Falleg og smekkleg íbúð á vinsælum stað í miðborg Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar gefur Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@remax.is