Greniteigur 37
230 Reykjanesbær
Ásett verð: 96.000.000 kr.

- Tegund
- Raðhús
- Stærð
- 172,600000762939 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1970
- Fermetraverð
- 556.199 kr.
Lýsing
Einstakt tækifæri til að eignast algjörlega endurnýjað hús á besta stað í Keflavík
** SELJANDI SKOÐAR AÐ TAKA MINNI EIGN UPP Í KAUPIN **
Greniteigur 37 er 172,6 fm raðhús á 2 hæðum. Húsið sjálft er 143,4 og bílskúrinn er 29,2 fm.
* Verið er að endurnýja þakpappa & þakjárnið
* Búið er að endurnýja skolp
* Búið er að endurnýja allar vatnslagni og setja hita í gólfin
* Búið er að endurnýja alla glugga
* Húsið var múrað og málað að utan í sumar
* Bílskúrshurðin hefur verið endurnýjuð og bílskúrsgólf er flísalagt með gólfhita
* 2 Fullbúin baðherbergi með sturtu
* 4 Svefnherbergi eru í húsinu
* Nýlegur sólpallur
* Bílastæði var nýlega hellulagt
* Allar innréttingar, gólfefni og hurðar eru nýlegar
* Verið er að leggja lokahönd á að múra húsið að utan og mála.
Lýsing á eign;
Gengið er inn í flísalagða forstofu , innbyggðir skápar með rennihurð eru á vinstri hönd þegar að inn er komið. Þar fyrir innan er svo gesta salerni með upphengdu salerni, Walk in sturtu og handlaug.
Forstofu herbergi er á neðri hæð með harðparketi á gólfi.
Útgengt er á sólpall frá holi.
Nýlegt eldhús með hvítri innréttingu og nægu skápaplássi.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Hægt er að ganga út á plan frá þvottahúsi.
Stofan er opin og björt, stórir gluggar og fallegt harðparket er á allri neðri hæðinni að frátöldu votrými. Skipt var um þrepinn í stiga sem leiðir þig upp á efri hæð hússins.
Efri hæðin;
Þegar að upp er komið eru þar 2 barnaherbergi á vinstri hönd, stórir gluggar og harðparket er á gólfum.
Baðherbergið er sérlega fallegt, veggir eru múraðir, gólfið er flísalagt. Walk in sturta, upphengt salerni og rúmgóð innrétting með handlaug.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott, harðparket er á gólfi ásamt stórum fataskáp og fataherbergi.
Rúmgott hol er fyrir framan hjónaherbergið sem nýta má sem leikhorn eða skrifstofurými.
Útgengt er á stórar þaksvalir frá efri hæðinni. Svalahurð út á þaksvalir var endurnýjuð.
Bílskúrinn er með nýlegri bílskúrshurð með opanara. Bílskúrinn er flísalagður einnig með hita í gólfi. Gert er ráð fyrir vask í bílskúr, einnig er gert ráð fyrir heitum potti sem búið er að leggja fyrir undir sólpallinn. Útgengt er frá bílskúr út á baklóð á nýlegan sólpall sem er við húsið. Rafmagnstafla var færð út í bílskúr til að koma fyrir sturtu á gesta baðherberginu á neðri hæð hússins.
Nýlegur sólpallur er á milli hússins og bílskúrs, hægt er að loka pallinum frá garðinum með hliði. Gert er ráð fyrir heitum potti á sólpalli, allar lagnir eru til staðar.
Verið er að leggja lokahönd á að endurnýja þakpappa og þakjárn á húsinu ásamt því að mála síðustu umferðina yfir ný múrað húsið.
Hér er einstakt tækifæri til að eignast mikið endurnýjað hús sem er viðhaldslétt næstu árin.