Hörpuland 3

601 Akureyri

Ásett verð: 90.900.000 kr.

Hörpuland 3
Tegund
Sumarhús
Stærð
116 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Fermetraverð
783.621 kr.

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Hörpuland 3 Hálönd - Nýbygging. Afhending 1.maí 2027 eða fyrr.

Sérlega vandað heilsárshús á fallegum stað ofan Akureyrar, einstakt útsýni og staðsetning rétt við skíðaparadís Akureyringa

Húsið skiptist í forstofu, geymslu, snyrtingu, þrjú svefnherbergi, stofu/eldhús sem eru eitt rými, baðherbergi með sturtu.

Forstofa er rúmgóð og útbúin snögum, á gólfi er flísar.

Snyrting með upphengdu salerni, innréttingu með vaska, sturtuklefi, á gólfi eru flísar.

Svefnherbergi eru þrjú, með fataskápum, á gólfi eru flísar.

Stofa og eldhús er eitt rými, innréttingar eru úr harðplasti, með eldhúsinnréttingu fylgir bakaraofn og keramikhelluborð af viðurkenndri gerð. Á gólfum eru flísar, úr stofu er hægt að ganga út á steypta verönd.

Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, innrétting úr harðplasti með vaska, á gólfi eru flísar og þar er útgengt á verönd.

Geymsla : í geymslu eru inntök húss og loftskiptibúnaður. Gólf er flísalagt. Góð innrétting þar gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur í borði.

Frágangur utanhúss;

Útveggir: Veggirnir eru einangraðir að utan með 100mm steinullareinangrun (150kg/m3) sem er skrúfuð í einingarnar í gegnum 21x70mm, lóðréttan krossviðarrenning c/c600mm. Á renningana festist loks 4mm slétt plötuklæðning (Alucobond).

Gluggar og hurðir: Gluggar og hurðir verði ýmist ál-timbur, timbur eða álkerfi.

Þakgerð: Þakplata er úr gegnheilum 16cm timbureiningum. Þakhalli er þannig að þakið hallar horn í horn með hæsta punkt yfir stofu en lægsta yfir geymslu. Ofan á þakplötu er bræddur pappi, svo 180mm harðpressuð steinullareinangrun og loks tvö lög af þakpappa af viðurkenndri gerð.

Sólpallar og stéttar: Sólpallur er steyptur með snjóbræðslu. Stétt er steypt og útbúin snjóbræðslu. Skjólveggir eru úr forsteyptum einingum.

Heitur pottur fylgir með, staðsettur á verönd.

Lóðir: Lóðir eru jafnaðar og í þær sáð grasfræi. Ath. sérstakar kvaðir eru í lóðaleigusamningi um gróðursetningu á svæðinu.

Nánari upplýsingar má fynna á SSbyggir.is

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu

Nánari upplýsingar veita:

Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is

Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is

Begga s: 845-0671 /begga@eignaver.is