Friggjarbrunnur 51
113 Reykjavík
Ásett verð: 59.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 63,4 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2016
- Fermetraverð
- 944.795 kr.
Lýsing
Nýtt í sölu -- Glæsileg 63,4 fermetra 2ja herbergja íbúð með rúmgóðu alrými, sérmerktu stæði á lóð og 9,8 fermetra svölum --
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu afar fallega 63,4 fermetra 2ja herbergja íbúð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Friggjarbrunn 51 í Reykjavík. Góðar 9,8 fermetra svalir til suðausturs. Geymsla er á geymslugangi og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsið er byggt árið 2016, steinað með fallega frágenginni lóð. Hellulagðrar stéttir með snjóbræðslu, sérstæði og gestastæði á lóð. Sameign er snyrtileg.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Úlfarársdal þar sem stutt er í grunnskóla , íþróttasvæði og sundlaug. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni og alla útvist í kringum Úlfarsfell.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Rúmar setustofu og borðstofu. Gluggar til suðausturs og norðausturs og útgengi á svalir. Stofa er opin við eldhús.
Svalir: Eru stórar eða 9,8 fermetrar að stærð og snúa til suðausturs.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu. Whirlpool stál bakaraofn og spansuðu helluborð, vifta og innb. uppþvottavél. Flísar á milli skápa og opnanlegur gluggi til suðurs.
Svefnherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til norðausturs.
Baðherbergi: Er rúmgott, með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, upphengt salerni og innrétting og skápur við vask. Upphækkun/innrétting undir þvottavél og þurrkara. Útloftun úr baðherbergi.
Sérmerkt stæði á lóð: Er staðsett á lóðinni nálægt inngangi.
Geymsla: Er með hillum og loftræst.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett í sameign með útgengi á lóð.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is