Bjarmaland-Laugarási

806 Selfoss

Ásett verð: 169.700.000 kr.

Bjarmaland-Laugarási
Tegund
Einbýlishús
Stærð
239,599998474121 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
4
Byggingarár
1965
Fermetraverð
708.264 kr.

Lýsing

Gimli fasteignasala, Ólafur Björn Blöndal og Lilja Hrafnberg kynna:

BJARMALAND - LAUGARÁSI, BLÁSKÓGABYGGÐ - EIGN Í SÉRFLOKKI

Glæsilegt einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr/vinnustofu og tveimur nýlegum Manta North, útleiguhúsum, alls 239,6 fm. Húsin standa á rúmlega 1,5 hektara grónu og fallegu landi.

Íbúðarhúsið er 134 fm.

Vinnustofan er 56 fm

Útleiguhúsin eru hvort um sig 24,8 fm.

Nánari lýsing:

Einstaklega glæsilegt 134 fm. einbýlishús á einni hæð ásamt 56 fm. bílskúr. Eignin stendur á 1,5 hektara leigulóð í eigu Bláskógabyggðar og var lóðarleigusamningur endurnýjaður 2016 til 50 ára. Eignin er lögbýli og lóðin á skilgreindu á verslunar- og þjónustusvæði í deiliskipulagi. Til viðbótar við íbúðarhúsið og bílskúrinn eru á lóðinni tvö smáhýsi sem eru í dag í útleigu til ferðamanna. Eignin hefur nánast öll verið endurbyggð á undanförnum árum. Í húsinu eru vandaðar innréttingar og gólfefni. 3 rúmbóð svefnherbergi og 2 baðherbergi. Stór harðviðarverönd með heitum potti. Rennsli í pott stýrt frá baðherbergi. Steypt og hellulagt bílaplan og hellulögð gangstétt í kringum húsið, hitalögn er undir öllu. Húsið er klætt að utan með lerki. Bílskúrinn 56 fm. Er tvískiptur, þar er möguleiki á að gera herbergi, salerni er þar inni. Gólfhitalagnir eru í öllu húsinu. Eign í algjörum sérflokki.

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.

Miðrými / sjónvarpshol: Harðparket á gólfi og góðar vegghillur. Útgengt út á verönd.

Baðherbergi #1: Flísar á gólfi og veggjum. Sturta afmörkuð með glerþili. Upphengt salerni og góð baðinnrétting.

Svefnherbergi: 3 rúmgóð svefnherbergi , harðparket á gólfum og fataskápar í öllum herbergjum.

Stofa / borðstofa: Rúmgóðar og bjartar með harðparket á gólfum.

Eldhús: Góð og mjög rúmgóð eldhúsinnrétting em stórri eldhúseyju. Harðparket á gólfi.

Þvottahús: Flísar á gólfi og stálvaskur. Útgengt á útisnúrur.

Baðherbergi #2: Flísar á gólfi og veggjum, fallegar innréttingar og sturtur afmarkaðar með gleri. Góður línskápur á stærra baði.

Bílskúr/vinnustofa: er 56 fm. Bílskúrshurð með sjálfvirkum hurðaropnara. Veggur í miðjum bílskúr með hurð á milli rýma. Aflokað rými með salerni og vaski. Rúmlega tveggja fermetra geymsla og geymsluloft í hluta. Í bíslagi við bílskúrinn er fjögurra fermetra verkfærageymsla sem er ekki inni í fermetrafjölda.3 fasa rafmagn er í skúrnum og bílahleðslustöð við bílskúrinn.

Einnig eru á lóðinni við íbúðarhúsið tveir geymsluskúrar.

Tvö smáhýsi 25 fm. Húsin voru flutt inn frá Manta North árið 2023 og byggðir voru góðir pallar umhverfis hvort hús fyrir sig. Aðstöðuhús 4 fm. fyrir lín og hreinlætisvörur. Húsin eru með gistileyfi II.

Árið 2023 var gerð breyting á deiliskipulagi og leyfi veitt fyrir byggingu fimm smáhýsa með samtals 10 gesti og 100 fm. verslunarhúsnæði. Lóðin var í framhaldi skilgreind sem verslunar- og þjónustulóð. Byggður var upp vegur og 3600 lítra rotþró sett niður. Tekin inn ný heimtaug fyrir rafmagn og ný kaldavatnslögn fyrir verslunar- og gistisvæðið.

Eignin Bjarmaland Laugarási er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 220-4939, birt stærð 239.6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi leigulóðarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða gimli@gimli.is eða Lilja Hrafnberg löggiltur fasteignasali, lilja@gimli.is s. 8206511

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?

Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...

Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda : Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna :Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.

Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala