Dynskálar 1

850 Hella

Ásett verð: 75.000.000 kr.

Dynskálar 1
Tegund
Einbýlishús
Stærð
162,9 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1970
Fermetraverð
460.405 kr.

Lýsing

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

EINBÝLÍSHÚS OG BÍLSKÚR VIÐ DYNSKÁLA NR. 1 Á HELLU. Afhending við kaupsamning.

Góð staðsetning fyrir barnafólk stutt í skóla , Íþróttahús og verslun .

Húsið og skúrinn eru byggð úr steinsteypu og eru múruð og máluð að utan. Nýlegt járn er á þökum. Eignin telur: Anddyri með flísum á gólfi og skáp. (Anddyrið er um 10 fm, sem ekki eru inni í uppgefnum fermetrafjölda) Stofu með parketi á gólfi Borðstofu með parketi á gólfi og hurð út á verönd. Eldhús með parketi á gólfi og upprunalegri innréttingu. Svefnherbergisgang með parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, stórri sturtu, innréttingu og handklæðaofni. Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum. Þvottahús , sem jafnframt er bakinngangur í húsið með flísum á gólfi. Bílskúrinn er frágenginn með gönguhurð og innkeyrsludyrum. Í enda hans er geymsla. Við húsið er stór verönd úr timbri og með skjólveggjum. Á henni eru 2 geymsluskúrar Einnig er hellulögð verönd með heitum potti. Við húsið eru gangstéttar úr steinsteypu og timbri. Bifreiðastæði er malarborið og lóðin er gróin. Eignin er staðsett miðsvæðis á Hellu og þarna er stutt í alla þjónustu, sem í boði er á staðnum.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.