Rauðagerði 20

108 Reykjavík

Ásett verð: 94.500.000 kr.

Rauðagerði 20
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
128,799999237061 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1962
Fermetraverð
733.696 kr.

Lýsing

Eignasala.is kynnir eignina Rauðagerði 20, 108 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 203-5423

Eignin Rauðagerði 20 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-5423, birt stærð 128.8 fm.

Björt, 4ra herbergja íbúð á eftirsóttum stað í Reykjavík ásamt 19,8 fm bílskúr. Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur verið útbúin lítil íbúð í bílskúrnum sem nú er í útleigu..

Íbúðin er staðsett í snyrtilegu fjórbýlishúsi á rólegum stað í Reykjavík þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu, útivistarsvæði og góðar samgöngur.

Eignin skiptist í:

Forstofu með flísum á gólfi.

Hol með parketi og fataskápum.

Bjarta stofu og borðstofu með útgengi út á rúmgóðar suðursvalir.

Eldhús með góðri innréttingu og góðu vinnuplássi.

Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og útgengi út á svalir.

Svefnherbergi með parketi og fataskápum.

Flísalagt baðherbergi með innréttingu og baðkari.

Í sameign er snyrtilegt sameiginlegt þvottahús með útgengi út í suðurgarð ásamt sérgeymslu.

Garður, sunnan hússins er stór og vel gróinn og fallegur.

Bílskúr:

19,8 fm bílskúr fylgir eigninni. Þar hefur verið útbúin lítil íbúð sem er í útleigu og getur nýst sem góð tekjulind fyrir nýjan eiganda.

Þetta er vel staðsett eign í grónu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Eign sem hentar jafnt fjölskyldum sem þeim sem vilja sameina eigin búsetu og mögulegar leigutekjur.

Nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurðsson löggiltur fateignasali, í síma 898 7209, tölvupóstur skuli@eignasala.is og Júlíus Steinþórsson löggiltur fasteignasali, í síma 899 0555, tölvupóstur julli@eignasala.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.