Hraungata 25

210 Garðabær

Ásett verð: 86.200.000 kr.

Hraungata 25
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
90 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
957.778 kr.

Lýsing

Lind fasteignasala / Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali kynnir einstaklega fallega þriggja herbergja 90 fm íbúð á 3. og efstu hæð með glæsilegu útsýni í nýlegu lyftuhúsi við Hraungötu 25 í Urriðaholti í Garðabæ.

Innréttingar frá Formus, Silestone borðplötur eru á eldhúsi og baðherbergi og innfelld lýsing í lofti. 11,9 fm svalir sem snúa til suðvesturs með glæsilegu útsýni, þvottahús og geymsla innan íbúðar og sameign rúmgóð og snyrtileg. Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi, en stutt er í alla helstu þjónustu og er m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug og golfvöllurinn Oddur í göngufæri og falleg náttúra allt um kring.

Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, borðstofu/stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Nánari lýsing:

Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.

Borðstofa/stofa: Parket á gólfi, útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs.

Eldhús: Innrétting með hvítri borðplötu og góðu skápaplássi, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar í vinnuhæð, span helluborð.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, innrétting með hvítri borðplötu, upphengt salerni, sturta.

Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, stór fataskápur.

Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.

Þvottahús : Flísar á gólfi, innrétting með góðu skápaplássi, tengi fyrir þvotta- og uppþvottavél, vaskur.

Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í 847 8584 / tara@fastlind.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.