Sambyggð 20, íbúð 0301

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 71.900.000 kr.

Sambyggð 20, íbúð 0301
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
105,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
678.942 kr.

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424 ) kynnir: Sambyggð 20, íbúð 0301, Þorlákshöfn. Ný, falleg og björt 105,9m2 endaíbúð á 3.hæð með 3 stórum svefnherbergjum og góðri geymslu innan eignar. Íbúðin er með sér inngang af svalgangi klæddum gleri. Úr stofunni er utangengt á góðar svalir, með gleri, sem snúa í vestur.

Lyfta er í húsinu.

ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR !

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Eignin telur:

* Rúmgóða forstofu með stórum skáp.

* Góða stofu og eldhús í opnu rými. Úr stofunni er utangengt á vestur-svalir, klæddum gleri.

Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð innrétting frá Selós, vönduð AEG heimilistæki með sjálfhreinsandi ofni, spanhelluborði, viftu, innbyggðri uppþvottavél og kæli-/frystiskáp.

* 3 stór svefnherbergi. Góðir fataskápar eru í öllum herbergjum.

* Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu frá Selós, upphengdu wc og sturta með sturtugleri og flísalögðum botn. Á gólfi og 2 veggjum eru vandaðar 60x60 flísar gráar að lit.

* Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara (barkalausum) á baðherberginu á snyrtilegan hátt.

* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er eikar vínyl parket af vandaðri gerð. Innihurðar eru hvítar, yfirfelldar, með svörtum hurðarhúnum.

* Póstkassar eru í andyrri, upplýsingatafla vegna íbúða sem er tilbúin til merkingar og dyrasími.

* Í stigahúsi eru gólf flísalögð og teppi á þrepum.

* Við húsið er stór, sameiginleg, lokuð hjóla- og vagnageymsla.

* Á lóðinni eru 26 malbikuð bílastæði, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða.

* Gangstéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgeymslu.

Að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum.

Húsinu fylgir stór, lokuð hjóla- og vagnageymsla.

26, malbikuð, bílastæði eru við húsið, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða og reiðhjólaskýli.

2 rafhleðslustöðvar verða við húsið.

Fyrir framan húsið eru hellulagðar stéttar með snjóbræðslukerfi.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar: [link]

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

KRÓNU VERSLUN

Apótekarann.

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina:

Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Super 1 pizza

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á [link]