Langagerði 124

108 Reykjavík

Ásett verð: 129.900.000 kr.

Langagerði 124
Tegund
Einbýlishús
Stærð
197,5 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1954
Fermetraverð
657.722 kr.

Lýsing

Rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum, hæð og ris auk frístandandi bílskúrs eintaklega vel staðfett innst í botnlanga við Langagerði í Reykjavík. Í dag eru 4 rúmgóð herbergi í húsinu en hægt að útbúa fleiri. Húsið stendur á 560 fm. lóð efst í botnlanga við opið svæði og með stórum suður bakgarði. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Skipt var um þakjárn og þakrennur vorið 2026 sem og klæðningu á risi endurnýjuð. Eignin er laus við kaupsamning.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 197,5 fm. og þar af er bílskúr 40 fm.

Nánar um eignina:

Neðri hæð skiptist í anddyri, hol, eldhús, baðherbergi, tvennar stofur, herbergi, stóran sólskála, þvottahús, geymlu og anddyri við bílskúr.

Anddyri með flísum á gólfi.

Hol með parketi á gólfi. Úr holi er stigi em liggur upp á efri hæð hússins.

Eldhús með snyrtilegri innréttingu, helluborð, ofn, tengi fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi.

Stofa/borðstofa rúmgóðar með parketi á gólfi. Úr stofunni er útgengt út í stóran sólskála.

Sólskáli með parkti á gólfi. Úr sólskála er útgengt út í garð.

Baðherbergi með sturtuklefa, hvít innrétting, gluggi og flísar á veggjum og gólfi.

Þvottahús með glugga, flísum á veggjum og steinað gólf.

Geymsla/búr með stein á gólfi.

Anddyri/inngangur við bílskúr með flísum á gólfi.

Efri hæð skiptist í fjögur rúmgóð herbergi, baðherbergi og rými þar sem áður var eldhús.

Gengið er upp teppalagðan stiga úr holi.

Á efri hæð eru fjögur rúmgóð svefnherbergi í dag með parketi eða dúk.

Baðherbergi með sturtuklefa, gluggi, tengi fyrir þvottavél og flísar á veggjum og gólfi.

Áður var eldhús á efri hæðinni en er ekki í dag og því er möguleiki á að setja aftur upp eldhús eða útbúa annað herbergi.

Bílskúr er 40 fm. með nýlegri bílskúrshurð með bílskúrshurðaropnara, hiti og rafmagn og gluggar. Hurð sem opnast út í garð hússins. Hiti í stétt við bílskúr og bílaplani.

Í kringum húsið er stór lóð og er hluti garðsins girtur af. Geymsluskúr á lóð fylgir eigninni.

Þak og þakrennur endurnýjaðar vorið 2026

Klæðning á risi endurnýjuð vorið 2026.

Örstutt í leikskóla og skóla. Húsið stendur efst í botnlanga með opið svæði við garð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is