Gerplustræti 8
270 Mosfellsbær
Ásett verð: 75.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 81 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2017
- Fermetraverð
- 937.037 kr.
Lýsing
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 81,0 m2, 3-4 herbergja íbúð á 3. hæð (efstu hæð) ásamt bílastæði í bílakjallara í lyftuhúsi við Gerplustræti 8 í Mosfellsbæ. Stórar svalir (ca 18 m2) í suðurátt með glæsilegu útsýni. Möguleiki á svalalokun.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu með gluggum innan íbúðar sem hægt væri að nýta sem svefnherbergi. Frábær staðsetning skammt frá bæði grunnskóla og leikskóla. Stutt er í ósnortna náttúruna og fallegar gönguleiðir.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og myndar alrými íbúðarinnar ásamt eldhúsi. Úr stofu er gengið út á stórar svalir í suðurátt.
Eldhús er með parketi á gólfi og hvítri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél, blástursofni, helluborði og háfi. Gert er ráð fyrir ísskápi í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3/Geymsla er innan íbúðar með flísum á gólfi og gluggum. Er hægt að nýta sem svefnherbergi eða skrifstofa.
Baðherbergi er flísalagt og með hvítri innréttingu, vegghengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni. Búið er að leggja rafmagn að stæðum í bílakjallaranum.
Sameign: Mynddyrasími. Lyfta. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Snjóbræðslur við inngagngsstéttir.
Garður: Stór sameiginlegur garður.
Verð kr. 75.900.000,-