Drangsskarð 11

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 101.000.000 kr.

Drangsskarð 11
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
111,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
906.643 kr.

Lýsing

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 111,4 fm, 3-4 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og glæsilegum sérafnotareit við Drangsskarð 11D í Hafnarfirði.

Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús/ stofu/borðstofu, sjónvarpshol, 2 svefnherbergi, baðherbergi.

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér

- Svansvottað.

- Loftskiptakerfi.

- Hægt að bæta 3 svefnherberginu við.

- Sérinngangur.

- Bílastæði með hleðslustöð.

- Sérafnotareitur með heitum potti.

- Gólfhiti.

Nánari lýsing:

Anddyri: Flísar á gólfi og með stórum fataskáp.

Eldhús: Parket á gólfi, glæsileg innrétting með góðu skápa- og borð plássi ásamt eldunareyju.

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi, opið og bjart rými með gólfsíðum gluggum. Útgengt út á rúmgóðan sérafnotareit sem snýr í suðvestur með heitum potti.

Setustofa: Parket á gólfi, mjög auðvelt að bæta við 3 svefnherberginu þar.

Hjónaherbergi: Parket gólfi og með stórum fataskáp.

Barnaherbergi: Parket gólfi og með fataskáp.

Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og hluta af veggjum. Stór spegill, handlaug í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni og walk in sturtu.

Þvottahús/geymsla: Flísar á gólfi,mjög rúmgott með stórum búrskáp, þvottahússkáp og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.

Í sameign er sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla ásamt tæknirými

Nánari lýsing:

SVANSVOTTUN

Það þýðir að húsin eru byggð eftir gæðakerfi þar sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem byggingarreglugerð nær ekki yfir að sama marki.

Má þar nefna: lágmarks rekstarkostnaður, valin byggingarefni með hollustu íbúa og umhverfisáhrif í huga.

LOFTRÆSTIKERFI

Í hverri íbúð er sjálfstætt Komfovent loftræstikerfi sem að blæs inn í öll rými íbúðar fersku lofti sem að hitað er upp með lofti sem að sogað er út.

Nýtnin á orkunni þar er um 87%. Þetta þýðir lægri rekstrarkostnað en umfram allt betri loftgæði. Kerfið heldur líka loftinu á hreyfingu og í því eru líka síur fyrir loftið sem blásið er inn.

GÓLFHITI

Upphitun er með gólfhita en eini ofninn er handklæðaofn. Gólfhitagrindin er innfeld í veggnum og lokað með þjónustulúgu.

Gólfhiti og loftræstikerfi vinna mjög vel saman og skila góðum loftgæðum.

BAÐHERBERGI

Stór og breið sturta. Sturtuglerið er ekki með slá heldur svörtum ramma og stöng upp í loft. Vandaðar flísar 60*60 flísar bæði á veggjum og gólfi. Spegill með baklýsingu. Innbyggður klósettkassi.

STÓRIR FATASKÁPAR

Stórir skápar bæði í anddyri og báðum svefnherbergjum. Skáparnir sem eru frá ikea eru frekar vel búnir af innvolsi en með einni ferð í IKEA geta kaupendur mótað þá eftir sínum þörfum.

ELDHÚS

Eldhúsborðið vegg megin er með dýpri borðplötu þannig að rými er fyrir kaffivél, brauðrist og slíkt fyrir innan án þess að rýra vinnu plássið á borðinu. Tenglar eru undir yfir skápnum

þannig að auðvelt er að þrífa vegg plötuna á bak við sem að er hvít og slétt. Dekton borðplötur frá Cosentino úr quartz steini. Simens raftæki, spanhelluborð er fellt niður í steinborð

þannig að það er slétt við borðplötuna. Undirfelldur eldhúsvaskur. Undir efriskápum er LED undirskápaljós. Bakhliðin á eldhús eyjunni er klætt með hljóðdempandi þiljum.

INNFELLD LED LÝSING

Yfir eyju og framan við svefnherbergi eru innfelld 2ja metra LED ljós sem gefa nútímalegan tón og birtu..

RAFLAGNIR

Tenglar og rofar eru svart efni úr Q-línunni frá Berker.

GÓLFEFNI

Parketið er Buckingham eik og er 12 mm harðparket frá Byko og er með hörkustuðulinn AC5/33. Undir öllum gólfefnum, parketi jafnt sem flísum er

hljóðdempandi undirlag bæði á efri og neðri hæðum.

YTRA BIRGÐI

KLÆÐNING

Lárétt svart klassískt bárujárn. Sementsplötur frá Viroc. Standandi 22 mm opin timbur klæðning í anddyrum, svölum og svalainnskotum.

TORFÞAK

Bara eins og í gamla daga þá er torfþak á húsinu með úthagatorfi sem aldrei þarf að slá. Friðað svæði fyrir fugla og fallegt útsýni úr sumum íbúðanna.

VIÐHALDSLÉTT LÓÐ

Göngustígar eru hellulagðir og með snjóbræðslu [ASI2] sem og allar tröppur. Þrír hvíldarpallar eru án snjóbræðslu. Lóðin er tyrfð með tvenns konar torfi

sem að hvorugt þarfnast mikillar umhirðu. Við lóðarmörk bæði austan og vestan megin er úthagatorf sem þarf aldrei að slá en á sérafnotaflötum og

innar í lóðinni er hvítsmáratorf. Lesa má um þessar torftegundir inni á torf.is. Bílastæðin eru með nautsterkum Ecoraster grindum fylltum af möl.

ÚTILÝSING

Útilýsingin sem er við öll anddyri er 2ja metra innfelld óbein LED lýsing. Tröppur í lóð eru með handriðum með lýsingu undir handlistanum.

Útilýsingin gefur einstaklega fallegt yfirbragð yfir eignirnar þegar dimma tekur.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.i s

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.