ÞÓRÐARSVEIGUR 16 ÍBÚÐ 303

113 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

ÞÓRÐARSVEIGUR 16 ÍBÚÐ 303
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
85,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
818.501 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÞÓRÐARSVEIGUR 16 ÍBÚÐ 303, 113 Reykjavík.

Þriggja herbergja íbúð á þriðju (efstu) hæð með inngangi af svölum, suðursvalir, ásamt lokuðu stæði í bílageymslu.

Stutt í alla helstu þjónustu m.a. skóla, leikskóla og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Í sameign: Sér geymsla, stæði í bílageymslu, hjóla- og vagnageymsla.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing:

Anddyri , fataskápur, greinatafla íbúðar.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt út á suður svalir.

Eldhús , innrétting (2023), spanhelluborð, vifta og ofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur og frystir.

Herbergi I , hjónaherbergi , fjórfaldur fataskápur.

Herbergi II, fataskápur, opinn (hurðar fylgja ekki.).

Baðherbergi , vínylflísar á gólfi, vaskinnrétting, salerni og sturtuklefi, handklæðaofn og gluggi.

Stæði fylgir í bílageymslu, steypt gólf, lagnaleið fyrir rafhleðslustöð er að stæði (ekki dregið í).

Gólfefni: Flæðandi harðpa rket er á alrými og herbergjum (2023), flísar eru á anddyri, baðherbergi og þvottahúsi.

Þórðarsveigur 16 -18 er steinsteypt íbúðarhús, kjallari,þrjár hæðir (nr. 18 er kjallari og 5 hæðir. sambyggt), 14 íbúðir eru í stigahúsinu.

Bílakjallari er undir húsinu. Í kjallara eru geymslur, á fyrstu hæð eru íbúðir, hjóla - og vagnageymsla og sorpgeymsla.

Lóð er sameiginleg gróin/frágengin. Steypt bílaplan er framan við húsið.

Lóð er 3.604 m² leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer F2264945 Þórðarsveigur 16, Reykjavíkurborg.

Stærð: Íbúð 77.8 m². Geymsla 7.6 m². Stæði í bílageymslu 0.0 m². Samtals 85.4 m².

Brunabótamat: 56.920.000 kr

Fasteignamat: 66.000.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 66.500.000 kr.

Byggingarár: 2004

Byggingarefni: Steypa.