Grensásvegur 56

108 Reykjavík

Ásett verð: 62.900.000 kr.

Grensásvegur 56
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
77,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1961
Fermetraverð
813.713 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 3.hæð við Grensásveg 56 í Reykjavík. Eignin er skráð 77,3 m2 en þar af íbúð 69,4 m2 og geymsla 7,9 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu/gang, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í kjallara.. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Baðherbergi var uppgert árið 2022. Húsið var múviðgert og málað árið 2025.

Nánari lýsing:

Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.

Forstofa/gangur er með parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.

Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.

Eldhús er með U-laga innréttingu og borðkrók, parket á gólfi. Í innréttingu er spanhelluborð og vaskur. Bakaraofn er ónýtur. Tengi er fyrir uppþvottavél í innréttingu. Flísalagt er á milli efri skápa og borðplötu.

Baðherbergi er flísalagt, með sturtu, vegghengdu salerni og innréttingu.

Sofa/borðstofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í vesturátt.

Geymsla er í sameign í kjallara. Er skráð 7,9 m2.

Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu . Einnig er aðgengi að sameignilegu þvottahúsi.

Verð kr. 62.900.000,-