Vesturvegur 21

900 Vestmannaeyjar

Ásett verð: 36.400.000 kr.

Vesturvegur 21
Tegund
Einbýlishús
Stærð
107,699999809265 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
1926
Fermetraverð
337.976 kr.

Lýsing

Vesturvegur 21, Vestmannaeyjum

Samkvæmt fasteignaskrá er um að ræða íbúð/einbýlishús, 95 fm á tveimur hæðum, 47,5 fm hvor hæð auk rishæðar, hús byggt 1926. Jarðhæð/1. hæð er steypt en hæð/2. hæð og ris er af timbri (var áður forskalað) en búið er að hreinsa forskalningu af og einangra efri hæð að utan og klæða með lituðu bárujárni.

Eignin skiptist svo:

Jarðhæð:

Anddyri/hol með flísum, fírkompa/geymsla við holið

Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, tengi fyrir þvottavél, upphengt wc

Eldhús með parketi, gott rými við eldhús, notað í dag sem svefnrými (studio)

Hæð:

Sér inngangur að baka til (sunnanverðu), stálstigi

Anddyri með parketi

Uppgangur/stigi uppí ris

Geymsla og lítið þvottarhús , þar er rafmagnstafla

Baðherbergi með flísum á gólfi, wc, sturtuklefi

Stofa/borðstofa með parketi á gólfi

Eldhúskrókur , parket á gólfi

Herbergi (1) með parketi á gólfi

Ris (ekki í uppgefnum fermetrum eignar):

Ekki full lofthæð en hægt að nota sem svefnrými eða geymsluloft

Ágæt lóð fylgir eigninni en lóðarstærð er 270 fm. Eignin stendur við miðbæ Vestmannaeyja. Gluggar og gler á efri hæð er í góðu ástandi en á neðri hæð er þörf á skoðun á gluggum og gleri og þörf á að mála stein. Efri hæð er nýlega einangruð og klædd lituðu bárujárni.