Ljósheimar 22

104 Reykjavík

Ásett verð: 55.000.000 kr.

Ljósheimar 22
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
60,8 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1963
Fermetraverð
904.605 kr.

Lýsing

Novum fasteignasala kynnir íbúð á 9 hæð í lyftuhúsi við Ljósheima 22, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 09-04 , fastanúmer 202-2283.

Um er að ræða eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu í Glæsibæ og Skeifunni. Eignin býður upp á stórfenglegt útsýni og hefur ytrabirgði hússins verið endurnýjað töluvert. Íbúðin sjálf þarfnast viðhalds.

Nánari lýsing:

Forstofa er rúmgóð með skáp og þaðan er gengið inn í önnur herbergi íbúðarinnar, dúkur á gólfi.

Eldhús er með nýlegri innréttingu (helluborð og ofn?) og parketi á gólfi sem þarfnast viðgerðar. Tengi fyrir þvottavél og uppþvottavél í eldhúsi.

Stofa er rúmgóð og með frábæru útsýnis til austur til Bláfjalla. Gengið er út á svalir sem snúa í austur út frá stofu. Parket á gólfi.

Svefnherbergi er rúmgott með miklu skápaplássi. Útsýni er til suðurs. Parket á gólfi.

Baðherbergi er í miðju íbúðar og er nokkuð rúmgott. Með baðkari, vaski og salerni. Flísalagt gólf og veggir.

Geymsla : staðsett í sameign.

Hjóla- og vagnageymsla : eru sameiginleg í sameign.

Þvottahús : er sameiginlegt í sameign, einnig er tengi fyrir þvottavél í eldhúsi íbúðar.