Lyngmói 1 - 103

603 Akureyri

Ásett verð: 58.500.000 kr.

Lyngmói 1 - 103
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
68,6 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
852.770 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Lyngmói 1 - 103

Ný glæsileg tveggja herbergja íbúð á 1.hæð í fjölbýlishúsi með lyftu, svalir snúa til vesturs

Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign. Samtals er hún 68,6 fm., þar af er geymsla 9 fm. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu og svefnherbergi.

Anddyri með parketi á gólfi og fataskáp.

Eldhús og stofa í opnu rými, útgengt út á svalir til vesturs úr stofu. Góð innrétting í eldhúsi, þar eru skúffur og helluborð. Stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.

Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum í sturtu. Sturta með glerskilrúmi og upphengt wc. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu í vinnuhæð. Loftræstistokkur/stýrikerfi er í skáp fyrir ofan þvottavél og þurrkara og í honum er því ekkert bak eða hillur.

Svefnherbergið er með parketi á gólfi og fataskápum.

Athugið að myndir eru úr sambærilegri sýningaríbúð.

Laus til afhendingar fyrri hluta árs 2027

Verktaki: Trétak ehf.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

berglind@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955