Axlarás 50

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 154.300.000 kr.

Axlarás 50
Tegund
Raðhús
Stærð
222 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
695.045 kr.

Lýsing

Auður Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali og Lind fasteignasala kynna nýtt og vandað endaraðhús á tveimur hæðum við Axlarás 50 í Áslandi Hafnarfirði. Eignin er skráð 222 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, þvottahús, sjónvarpsherbergi og tvær geymslur.

Heimasíða verkefnisins má finna hér

Byggingaraðili: Þarfaþing hf.

Aðalhönnuður: Arkís arkitektar ehf.

Eigninni verður skilað á byggingarstigi 3/4 rúmlega tilbúið til innréttinga.

*Gólf eru tilbúin undir gólfefni.

*Allir veggir og loft innan íbúða eru sandsparslaðir og málaðir en lokaumferð skilin eftir.

*Innveggir aðrir en steyptir eru hlaðnir úr Ytong hleðslusteini, sparslaðir og málaðir í ljósum lit án lokaumferðar.

*Loft í alrými eru tilbúin undir loftadúk.

*Gólfhiti hefur verið lagður og lagnakistur klárar án stjórnstöðvar.

*Búið er að leggja í steypu allar lagnir fyrir vélræna loftræsingu í hvert herbergi og gert ráð fyrir loftræsikerfi með varmahjóli til orkusparnaðar.

*Þvottahús skilast spörtluð og máluð án lokaumferðar, gólf tilbúin undir flísalögn.

*Baðherbergi skilast með spörtluðum loftum og hluta veggja aðrir veggir og gólf eru tilbúin undir vatnsvörn og flísalögn, að undanskyldum sturtubotni.

Lóð : lóðin verður fullfrágengin með burstuðu Lunawood sólpöllum og girðingum. Aðgengi verður hellulagt með snjóbræðslu samkvæmt lagnateikningum. Gróðurbeð verða grófjöfnuð en gróður fylgir ekki. Ídráttur fyrir rafbílahleðslu verður lagður.

Nánari lýsing:

2.hæð

Forstofa : Rúmgóð forstofa með góðu skápaplássi. Þakgluggi sem veitir birtu inní rýmið. Úr anddyri er gengið inní geymslu.

Geymsla : Innaf forstofu, flísar á gólfi, tvöföld útihurð. 10,6fm

Borðstofa/stofa : Rúmgott og bjart alrými, með útgengi út á sólpall. Stór gluggi sem gefur fallega birtu inní alrýmið.

Eldhús : opið við borðstofu/stofu. Útgengi út á sólpall.

Snyrting

Herbergi : 8,7 fm

1.hæð

Sjónvarpshol : 11,4 fm, Inna sjónvarpsholi er geymsla/lagnarými.

Geymsla : 5,6 fm.

Baðherbergi :

Þvottahús : sér þvottahús. Möguleiki á að setja auka sturtu í þvottahúsi.

Hjónaherbergi : 12,0 fm, fataherbergi 6,0 fm. innaf hjónaherbergi er baðherbergi. Útgengi út á sólpall.

Herbergi : 8,7 fm. Útgengi út á sólpall.

Herbergi : 10,9 fm.

Nánari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.