Klængsbúð 22

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Klængsbúð 22
Tegund
Raðhús
Stærð
121,400000762939 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
616.969 kr.

Lýsing

Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu Klængsbúð 22, Þorlákshöfn. Fallegt, nýlegt (2022), 4ra herbergja fullbúið endaraðhús á einni hæð með innangengum innbyggðum bílskúr.

Húsið er klætt timburhús steypt á sökkul með gólfgeisla. Frábærlega skipulegt fjölskylduhús með aflokaðri suður lóð og verönd.

Húsið er einstaklega vel staðsett þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.

- Eignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá alls 121,4 fm.

- Íbúðarhluti 99,2 fm. og bílskúr 22,2 fm.

- Endaraðhús á einni hæð með innangengum bílskúr

- 3 rúmgóð svefnherbergi með fataskápum (herbergi inn af forstofu er merkt geymsla á teikningu)

- Afmörkuð lóð með skólgirðingu og stórum sólpalli sem snýr til suðurs/veðurs

- Hiti er í gólfum

- Tengi fyrir rafmagnsbíl

Eignin skiptist í: Forstofu, alrými: eldhús/stofa/borðstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr og þvottahús.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísalögð með skápum.

Stofa og eldhús: Rúmgóð stofa og eldhús í opnu rými, parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar sem snúa út á suðurverönd með útgengi.

Eldhús er með L-laga innréttingu og eyju. Eyja er með spanhelluborði og góðum skúffum. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, ofn í vinnuhæð fylgir. Uppþvottavélin og blöndunartæki í eldhúsi er 3 mánaða og vaskurinn er ársgamall.

Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt með skáp á heilum vegg.

Svefnherbergi 2: Parketlagt með skáp.

Svefnherbergi 3: Parketlagt með skáp. Er teiknað sem geymsla.

Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum með vaskinnréttingu, upphengdu salerni, walk in sturtu, glerþili og handklæðaofni. Gluggi. Lagðar voru sverari lagnir í sturtuna svo væri meiri kraftur á vatninu.

Bílskúr: Innangengur af forstofu. Stærð 22,2 fm. Rafmagnstafla og hitastýringar fyrir gólfhita. Milliloft er yfir hluta skúrsins.

Þvottahús: Af bílskúr. Mjög gott þvottahús/geymsla með stórum skápum og vinnuborði með vaski. Utangengt er úr þvottahúsinu af palli og út í lóð

Lóð: Lóðin snýr í suður og vestur og nýtur því sólar þar allan daginn. Garðurinn er með stórum sólpalli á suðurhlið. Lóðin hefur verið afmörkuð til suðurs/vesturs að hluta, með veglegri skjólgirðingu, útgengi þaðan er á vesturhlið. Útgengi er í lóð úr stofu og þvottahúsi. Að norðanverðu er kominn lítill timburpallur við útihurðina, að öðru leiti er mulningur að framan á bílaplani.

Allar innréttingar og tæki elhúss eru úr Ikea utan vasks sem er frá húsasmiðjunni. Á baðherberginu er vaskinnrétting, klósett og klósettkassi úr BYKO

Flísar inná baði og forstofu úr BYKO. Parket og hurðar eru úr BYKO. Þvottahúsinnrétting og tæki er úr Ikea

Nánari upplýsingar veitir:

Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.695-8905 / elin@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.