Boðagrandi 2a

107 Reykjavík

Ásett verð: 91.900.000 kr.

Boðagrandi 2a
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
102,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2000
Fermetraverð
896.585 kr.

Lýsing

Falleg og vel skipulögð 102,5 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með tvennum svölum og stæði í bílageymslu í lyftuhúsi á eftirsóttum stað í vesturbænum. Sjávarútsýni. ** LAUS VIÐ KAUPSAMNING *** Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali í síma 893-9929 eða pall@betristofan.is

Lýsing eignar:

Forstofa: Parket á gólfi, góðir fataskápar.

Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi, útgengi á norður svalir. Frábært útsýni út á sjóinn og Jökulinn.

Eldhús: Fín viðarinnrétting, gott vinnupláss. Borðkrókur/borðstofa við eldhús, parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Stórt herbergi sem er innst á gangi, parket á gólfi, fataskápar, útgengi á vestur svalir.

Baðherbergi: Rúmgott og fallega innréttað, flísar á gólfi og veggjum, salerni, baðkar og sturtuklefi. innrétting undir vaski og hliðarskápur.

Barnaherbergi: Gott barnaherbergi með parketi á gólfi, fataskápur, gluggi.

Þvottahús: Inn af eldhúsi, flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél, skolvaskur.

Íbúðinni fylgir 8,6 fm geymsla í kjallara.

Bílakjallari: Sér bílastæði í snyrtilegum kjallara fylgir íbúðinni.

Stutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði KR.