Dugguvogur 15

104 Reykjavík

Ásett verð: 44.900.000 kr.

Dugguvogur 15
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
72,2 m²
Herbergi
1
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
621.884 kr.

Lýsing

Höfði fasteignasala kynnir til sölu eða leigu glæsilegt og vel staðsett atvinnu-/verslunarhúsnæði á tveimur hæðum að Dugguvogi 15. Um er að ræða bjart og stílhreint rými með mikilli lofthæð, háum gólfsíðum sýningargluggum og góðu auglýsingagildi. Viðmiðunarverð í leigu er kr.350.000. á mánuði. Ekki vsk. kvöð á eigninni.

Húsnæðið er samtals 72,2 fm og skiptist í opið verslunar-/sýningarrými á jarðhæð og vel nýtta neðri hæð með eldhúsi, salerni með sturtu og rými sem getur nýst sem lager, starfsmannaaðstaða eða skrifstofa.

Á jarðhæð er bjart og opið rými með aukinni lofthæð, stórum gólfsíðum gluggum og útgengi beint að götu. Rýmið er parketlagt og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er fyrir verslun, þjónustustarfsemi, sýningarsal, vinnustofu eða skrifstofu. Steypt loft og súla gefa rýminu nútímalegan og iðnaðarlegan karakter.

Stigi liggur niður á neðri hæð þar sem er flísalagt rými með eldhúsaðstöðu, geymslu-/lagerplássi og salerni með rúmgóðri sturtu. Eldhúsinnrétting er snyrtileg og búin helluborði og uppþvottavél. Neðri hæðin býður upp á góða möguleika sem starfsmannaaðstaða, bakrými eða skrifstofurými.

Húsnæðið er laust við kaupsamning. Glæsilegt atvinnu-/verslunarhúsnæði á góðum stað

Samtals 72,2 fm

Bjart rými með aukinni lofthæð

Háir gólfsíðir sýningargluggar með góðu auglýsingagildi

Opið verslunar-/sýningarrými á jarðhæð

Neðri hæð með eldhúsi, salerni og sturtu

Lager, starfsmannaaðstaða eða skrifstofuaðstaða á neðri hæð

Gólfhiti í öllu rýminu

Eldhúsinnrétting með helluborði og uppþvottavél

Laust við kaupsamning.

Eignin Dugguvogur 15 er skráð hjá FMR: Eign nr. 251-2075, birt stærð 72,2 fm.

Nánari upplýsingar veitir: Bjarki Sigþórsson Sölumaður , í síma 8962798, tölvupóstur bjarki@hofdi.is.

Runólfur Gunnlaugsson viðsk.fr. lögg.fast á Höfða s. 892 7798. runolfur@hofdi.is