Skagfirðingabraut 6

550 Sauðárkrókur

Ásett verð: 39.900.000 kr.

Skagfirðingabraut 6
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
90,1 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1948
Fermetraverð
442.841 kr.

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu Hjá Ernu hárgreiðslustofu ehf. á Sauðárkróki. Með í kaupunum fylgir fasteignin Skagfirðingabraut 6 ásamt öllum innréttingum og búnaði.

Hjá Ernu hárgreiðslustofa er staðsett við Skagfirðingabraut 6 í miðbæ Sauðárkróks og hefur það rekið hárgreiðslustofu og verslun til fjölda ára. Félagið á húsnæðið Skagfirðingabraut 6 sem er 90,1 fm. steypt verslunarhúsnæði á neðri hæð að norðan. Húsnæðið er rúmgott og nýtist vel til núverandi starfsemi en býður þó upp á mjög mikla möguleika. Húsnæðið er huggulega innréttað og skiptist í afgreiðslu, sal, snyrtingu og kaffistofu/eldhús þar sem jafnframt er þvottaaðstaða. Tveir sérinngangar eru í húsnæðið, annar um afgreiðlsu og hinn um eldhús/kaffistofu.

Húsinu hefur verið mjög vel við haldið og hefur verið mikið endurnýjað, m.a. búið er að einangra, múra og mála húsið að utan og endurnýja útihurðir og gler og glerlista í gluggum á norður- og austurhlið. Þegar það var múrað var notað Í-múrkerfi, þ.e. einangrað að utan og múrað sem og þakkantur endurnýjaður. Að innan hefur eignin mikið endurnýjuð m.a. árið 2019/2020 var skipt um gólfefni, loftaklæðningu og raflagnir að hluta. Salerni var endurnýjað 2022. Á stofunni eru fimm klippistólar.

Eignin fæst afhent 1. janúar 2027.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is

Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali

Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala