Hringbraut 32
101 Reykjavík
Ásett verð: 61.500.000 kr.

- Stærð
- 70,7 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1930
- Fermetraverð
- 869.873 kr.
Lýsing
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð við Hringbraut 32, 101 Reykjavík. Tveir inngangar eru í íbúðina, af Hringbraut og Tjarnargötu, en sá síðari er yfirleitt notaður. Nýtt parket á stofu, holi, eldhúsi og minna svefnherberginu. Nýr baðvaskur og blöndunartæki þar og í sturtu. Laus við kaupsamning.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð samtals 70,7 fm en þar af er ein geymslan skráð 2,8 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol með nýju parketi á gólfi.
Stofa er rúmgóð með nýju parketi á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri eldhúsinnrétting en neðri hluti hennar hefur nýlega verið endurnýjaður, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur og nýtt parket á gólfi. Úr eldhúsi er útgengt í sameiginlegt þvottahús og geymslur sem og í bakgarð eignarinnar.
Hjónaherbergi er rúmgott með nýlegan fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II með nýju parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, snyrtilega innréttingu, glugga og handklæðaofn.
Þvottahús er í sameign á hæðinni þar sem hver íbúð er með sitt tengi, en aðeins jarðhæðin og 1. hæð nýta sér aðstöðuna.
Geymslur eru 3 , ein innan íbúðar undir stiga, ein opin innaf þvottahúsi og svo köld geymsla með rafmagni í garði.
Frábærlega vel staðsett og aðeins 200 metra fjarlægð frá Háskóla Íslands. Hljómskálagarðurinn og miðbær Reykjavíkur í göngufæri og stutt í alla þjónustu og skóla.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is