Brávallagata 50

101 Reykjavík

Ásett verð: 68.500.000 kr.

Brávallagata 50
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
72,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1937
Fermetraverð
942.228 kr.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: 72,7 fermetra, 3ja herbergja íbúð, Brávallagata 50, 101 Reykjavík, 2. hæð til hægri.

Íbúðin skiptist í hol, fatahengi, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og stofu.

Í kjallara er rúmgóð 15,9 fm sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.

Komið er inn í parketlagt hol með eik. Þar innaf er lítil geymsla/fataskápur. Hvítar innihurðir eru í íbúðinni sem hefur verið töluvert endurnýjuð.

Eldhúsið er með harðparketi, nýrri borðplötu, eldhúsinnréttingu og borðkrók.

Baðherbergið er endurnýjað og með baðkari og glugga. Handklæðaofn.

Stofan er með harðparketi á gólfi.

Við hlið stofu er stórt hjónaherbergi með eikarparketi og hægt er að opna á milli rýma.

Svefnherbergi II er með eikarparketi á gólfi.

Í kjallara er rúmgóð 15,9 fm sérgeymsla með glugga sem hefur verið skipt upp í tvö rými.

Sameiginlegt þvottahús og einnig er sameiginlegt svæði í kjallara þar sem hverri íbúð hefur verið ráðstafað ákveðnu svæði til umráða.

Húsið að utan lítur vel út og hefur fengið hlotið gott viðhald. Íbúðin er í 4ra íbúða stigahúsi.

Lóðin er fullfrágengin og afgirt með hellulagðri stétt, grasflöt og trjábeðum og er í óskiptri sameign hússins.

Staðstetning eignarinnar er á vinsælum stað í vesturbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, Melabúðina, Kaffi Vest og fleira.

Allar frekari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.