Oddagata 1
545 Skagaströnd
Ásett verð: 39.500.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 155,3 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1963
- Fermetraverð
- 254.346 kr.
Lýsing
Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu Oddagötu 1, Skagaströnd ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Um er að ræða sex herbergja steypt einbýlishús á pöllum alls 155,3 fm.
Leigulóð hússins er 900 fm.
Stutt er í ýmsa þjónustu eins og grunnskóla, leiksskóla, verslun o.þ.h.
Fasteignin skiptist í fimm herbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús, geymslur og forstofu.
Komið er í flísalagða forstofu á miðhæð hússins.
Þar er jafnframt hol, stofa og eldhús sem er parketlagt.
Í eldhúsi er hvít innrétting með grárri borðplötu, Electrolux bakaraofn, AEG helluborð.
Stofa er rúmgóð og með gluggum til suður og vesturs.
Frá holi er gengið upp nokkrar tröppur og komið þar á herbergisgang.
Við herbergisgang eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi .
Tvö herbergjanna eru parketlögð og eitt dúklagt og með skápum. Rúða í einu herbergi brotin.
Baðherbergi er flísalagt, hvít innrétting með ljósri borðplötu, handklæðaofn og baðkar.
Á neðstu hæðinni er þvottahús og geymsla með máluðum gólfum og tvö herbergi sem bæði eru parketlögð.
Húsið hefur verið klætt að utan og var það einangrað á sama tíma.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala