Rauðarárstígur 3

105 Reykjavík

Ásett verð: 65.500.000 kr.

Rauðarárstígur 3
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
78,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1946
Fermetraverð
835.459 kr.

Lýsing

Vel skipulög þriggja herbergja íbúð að Rauðarárstíg 3, til sölu.

Íbúðin er 78,4 fermetrar og er á þriðju hæð. Litlar svalir út frá eldhúsi og gluggi á baðherbergi. Frábærlega vel staðsett íbúð miðsvæðis í Reykjavík, örstutt í Mathöllina við Hlemm og í næsta nágrenni við Kjarvalsstaði og paradísina sem Klambratúnið er.

Nánari lýsing:

Fostofugangur með góðum innbygðum skáp, flísar á gólfi.

Eldhús með glugga og hvítri innréttingu og litlum svölum, frábærar fyrir grillið.

Útsýni í fallegan bakgarð til austurs. Flísar á gólfi.

Stofa er sótr og björt með fallegum útskotsglugga og útsýni út á haf.

Parket á gólfi.

Svefnherbergi eru tvö , stærra herbergið með stórum skápum minna herbergið með glugga sem vísar út í bakgarðinn. Parket á gólfum.

Baðherberg i með glugga og sturtu. Tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi.

Geymsla e r staðsett á 4. hæð hússins og er sameignleg með með annarri íbúð í húsinu.

Sameiginlegt þvottahús í kjallaranum þar sem hver íbúð er með sitt tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Úr kjallara hússins er hægt að ganga út í bakgarðinn.

Gangstétt, gata og bílastæði fyrir framan húsið er upphitað með affalli húsa við götuna og hið sama á við um gangstétt í garðinum bak við hús. Fjórar hleðslustöðvar eru fyrir framan húsið.

Ef kaupendur vilja getur allt innbú fylgt með í kaupunum.

Nánari lýsing á framkvæmdum í íbúð og húsi.

Íbúð var tekin í gegn árið 2009 af fyrri eigendum, m.a. settar nýjar pípulagnir og raflagnir í íbúð. Árið 2016 var þak hússins og kæðning viðgert.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141, eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.