Ægisíða 72 - leiga

107 Reykjavík

Ásett verð: 750.000 kr.

Ægisíða 72 - leiga
Tegund
Hæð
Stærð
172,700000762939 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1953
Fermetraverð
4.343 kr.

Lýsing

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna nýtt til leigu:

Falleg og rúmgóð 173 fm sérhæð og bílskúr að Ægisíðu 72 í Reykjavík. Um er að ræða stórglæsilega eign við eina virðulegustu og fallegustu götu Reykjavíkur, með óhindruðu útsýni til suðurs.

Almenn lýsing:

Íbúðin skiptist í forstofu, gang, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og þrjár samliggjandi stofur. Árið 2012 var hæðin endurnýjuð að innan í samvinnu við Rut Káradóttur innanhússarkitekt.

Þvottahús og geymsla eru í kjallara og eru aðgengileg úr sameign.

Bílskúrinn er 38,7 m² hátt til lofts og vítt til veggja, þar er heitt og kalt vatn.

Nánari lýsing á hæð

Forstofa: Komið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu. Þaðan er einnig aðkoma niður í kjallara og sameign.

Herbergi: Á vinstri hönd frá anddyri er svefnherbergi.

Gangur: Falleg tvöföld glerhurð skilur að anddyri og gang.

Stofur: Þrjár glæsilegar samliggjandi stofur með aukinni lofthæð, skrautlistum og stórfenglegu útsýni. Stofan er í miðjunni, bókaherbergi til vinstri og borðstofa til hægri. Útgengt er á svalir frá lesstofu.

Hjónaherbergi: Innst á gangi er rúmgott hjónaherbergi með sérsmíðuðum hillum og skápum. Svalir eru út af hjónaherbergi.

Eldhús: Mjög falleg hvítlökkuð sérsmíðuð innrétting með stein á borðplötum. Gólf er flísalagt og í innréttingunni er búrskápur.

Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, með ljósgráum flísum annars vegar og hvítum „subway“ flísum hinsvegar. Innrétting með skáp fyrir þvottavél og þurrkara, baðkar með sturtu og gluggi.

Gólfefni: Ráðandi gólfefni á hæðinni er ljóst eikarparket.

Umhverfi og staðsetning

Ægisíða í Vesturbæ Reykjavíkur er ein virðulegasta og eftirsóttasta gata borgarinnar, með óhindruðu sjávarútsýni og röð fallegra húsa.

Frábær staðsetning við strandlengjuna þar sem útivistarsvæði og gönguleiðir við sjóinn eru í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.