Haustakur 2

210 Garðabær

Ásett verð: 119.900.000 kr.

Haustakur 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
146,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
820.109 kr.

Lýsing

**SELD MEÐ FYRIRVARA**

Móeiður og Miklaborg kynna í einkasölu: Haustakur 2, rúmgóða og bjarta 146,2 fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð , á eftirsóttum stað í Garðabæ.

Falleg og einstaklega vel skipulögð íbúð með stórum og sólríkum svölum sem snúa í suðvestur með æðislegu útsýni.

Eignin skiptist í anddyri, stórt alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með bæði sturtu og baðkari og sér þvottahús.

Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is

Nánari lýsing

Íbúðin skiptist í: forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, borðstofu og stofu.

Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi.

Stofa/borðstofa: Bjartar og rúmgóðar opnar stofur. Úr stofu er gengið út á svalir í suðvestur með æðislegu útsýni.

Eldhús: Stórt og rúmgott eldhús með eyju.

Baðherbergi: Stórt baðherbergi með bæði baðkari og sturtu.

Svefnherbergin: Eru þrjú og öll góð að stærð með góðum skápaplássi.

Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar.

Geymsla: Góð geymsla í sameign (23,2fm)

Hleðslustöðvar eru fyrir framan hús.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Akrahverfinu í Garðabæ , þar sem leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði eru í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta er í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum.

Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is