Hólmabrún 7
810 Hveragerði

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 207,400000762939 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 0
- Baðherbergi
- 0
- Byggingarár
- 2023
Lýsing
NÝLEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR, HEITUM POTTI OG SKJÓLSÆLLI VERÖND
Baldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu vandað og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Hólmabrún 7 í Hveragerði. Húsið er steinsteypt, byggt 2023 og búið netstýrðum gólfhita, loftræsingu með varmaendurvinnslukerfi og LED lýsingu með snjallstýringu. Í húsinu eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, lokanlegt sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi með sturtu og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Úr stofu er útgengt á hellulagða verönd með heitum potti og skjólvegg.
Stærð eignarinnar er 207,40 fermetrar samkvæmt skráningu HMS, þar af er bílkúr 34,20 fermetrar.
Aðal sölupunktar: Byggt 2023, steinsteypt hús á einni hæð
Þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi
Lokanlegt og hljóðdempað sjónvarpsherbergi
Tvö baðherbergi, bæði með sturtu
Opið alrými með eldhúsi, eyju, stofu og borðstofu
Eldhúsinnrétting frá Axis með innfelldri uppþvottavél
Gólfhiti í öllu húsinu með netstýranlegri Salus stýringu
Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu
LED lýsing í öllu húsinu með snjallstýringu
Hellulögð verönd með heitum potti og skjólvegg
Rúmgóður bílskúr með geymslulofti
Hiti í bílaplani
Viðhaldslítið hús, steinað að utan, ál/tré gluggar
Húsið skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, sjónvarpsherbergi, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og innbyggðan bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Eldhús: Vönduð innrétting frá Axis með góðu skápaplássi og innfelldri uppþvottavél. Eyja með sætum aðskilur eldhús og stofu og á henni eru hitaþolnar flísar.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi, stórum gluggum og útgengi á hellulagða verönd. Flísar á gólfi og hljóðdempandi dúkur í lofti.
Sjónvarpsherbergi: Lokanlegt með rennihurðum og vel hljóðdempað með dúk í lofti og veggklæðningu. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataherbergi inn af.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi.
Baðherbergi I: Rúmgott með sturtu og glervegg, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Útgengt er á skjólsæla verönd.
Baðherbergi II: Rúmgott með sturtu, innréttingu og vegghengdu salerni.
Þvottahús: Rúmgott með innréttingu, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er aðgengi að geymslulofti.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með geymslulofti.
Byggingarlýsing:
Húsið: Steinsteypt hús með viðhaldslítilli steiningu að utan og gluggum úr áli og tré.
Þak: Bárujárn á lektum, tjörupappi á klæðningu og hefðbundin loftun. Húsið er vel einangrað.
Hiti og loftræsing: Gólfhiti er í öllu húsinu með Salus stýringu sem hægt er að stýra í gegnum netið. Nettengd loftræsing með varmaendurvinnslu um varmahjól. Flísar á gólfum skila hitanum frá gólfhitanum vel.
Lýsing: Öll ljós eru LED ljós með snjallstýringu.
Bílaplan: Hiti í bílaplani.
Lóð og verönd: Hellulögð verönd út frá stofu með heitum potti. Veröndin er afmörkuð með skjólvegg og þar er gott skjól fyrir flestum áttum. Garðurinn er þökulagður og í honum eru um 230 tré og runnar, meðal annars gljámispill, gullregn, birki, fura og reyniviður, auk tveggja blómakera.
Staðsetning: Hveragerði er vinsæll og fjölskylduvænn bær í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Í bænum eru grunnskóli, leikskólar, sundlaugin Laugaskarði og Hamarshöllin, og stutt er í náttúruperlur eins og Reykjadal og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Nýlegt og vandað einbýlishús á einni hæð með snjallstýringu, bílskúr og skjólsælli verönd með heitum potti. Hentar vel fjölskyldum og þeim sem vilja meira pláss og rólegra umhverfi stutt frá höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is - Að selja hjá Baldri