Sóleyjarklettur 12
310 Borgarnes
Ásett verð: 61.500.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 91,4 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2023
- Fermetraverð
- 672.867 kr.
Lýsing
Nes fasteignasala ehf kynnir:
Sóleyjarklettur 12, 310 Borgarnes íb. 102. Íbúðin er fullbúin og laus til afhendingar við kaupsamning!
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í tveggja hæða nýbyggingu. Eignin er 90.2 fm að stærð skv. skráningu HMS, þar af er 6,6 fm sérgeymsla á geymslugangi á jarðhæð.
Gólf á baðherbergjum eru flísalögð en önnur gólf með harðparketi. Innréttingar eru frá AXIS, parket á gólfum frá Birgison og flísar frá Álfaborg.
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sérinngang í anddyri , þaðan er gengið í baðherbergi , 2 svefnherbergi og rúmgott alrými sem samanstendur af eldhúsi , stofu og borðstofu , útgengt er út á lóð úr stofu.
Anddyri: Flísar á gólfi, góður fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfum, rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Góð innrétting, upphengt salerni og walk-in sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Parket á gólfum, rúmgóð innrétting frá AXIS með efri og neðri skápum, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél, helluborð og vifta. Mikið skápapláss og gott vinnurými.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfum. Björt og rúmgóð.
Nýleg og vönduð íbúð í nýju spennandi hverfi í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.