Áshamar 5 íb.-201

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 101.400.000 kr.

Áshamar 5 íb.-201
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
138,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
730.022 kr.

Lýsing

Helgafell fasteignasala kynnir glæsilega þriggja til fimm herbergja endaíbúð á annarri hæð við Áshamar 5 í Hafnarfirði – fullbúin og tilbúin til afhendingar.

Birt stærð: 138,9 fm. (þar af 5,3 fm. sérgeymsla)

Verktaki : JE Skjanni ehf. sjá heimasíðu verkefnisins hér

Lýsing eignar

Anddyri:

Rúmgott og bjart með harðparketi og þreföldum skápum sem tryggja gott geymslupláss.

Stofa og eldhús:

Mynda eitt rúmgott alrými, L-laga eldhúsi með eyju tengist stofu og borðstofu.

Innréttingar frá Kappa , vönduð tæki frá Bosch og Smith & Norland , meðal annars ísskápur, uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og bakaraofn í vinnuhæð.

Úr stofunni er útgengt á 16,3 fm. suðvestur svalir með flottu útsýni.

Hjónaherbergi:

Rúmgott (16,1 fm.) með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi.

Barnaherbergi:

Björt og vel skipulögð með innbyggðum skápum og harðparketi.

Baðherbergi og þvottahús:

Rúmgott og vandað baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum frá Agli Árnasyni. „Walk-in“ sturta, upphengt salerni og inn af baðherberginu er flísalagt þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Gæði og búnaður Gólfhiti í allri íbúðinni

Vönduð gólfefni og hljóðeinangrun

Hvítar 90 cm hurðir frá Parka

Dyrasímakerfi með myndavél

Ljósleiðari og nettengingar (RJ45) inn í smáspennutöflu

Sérgeymsla á neðstu hæð

Lyfta og teppalagðir stigagangar með góðri lýsingu

Hjóla- og vagnageymsla í sameign

Sameiginleg 95 bílastæði, þar af nokkur með rafmagnslögnum fyrir rafbíla

Umhverfi

Áshamar nýtt og barnvænt hverfi í Hafnarfirði þar sem leikskóli er í götunni og gönguleið í skóla án þess að fara yfir umferðargötu.

Stutt í falleg útivistarsvæði, leikvelli og þjónustu.

Ath: Myndir geta verið úr sambærilegri íbúð.

Ath: Svalalokanir sem sjást á tölvugerðum myndum fylgja ekki með íbúðinni.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn Helgafells fasteignasölu.