Arnarhólsbraut 4
805 Selfoss
Ásett verð: 95.900.000 kr.

- Tegund
- Sumarhús
- Stærð
- 108,5 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2016
- Fermetraverð
- 883.871 kr.
Lýsing
ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Draumaeign golfarans.
Glæsilegt sumarhús sem stendur á fallegri lóð á eftirsóttum stað í Öndverðarnesi í Grímsnes og Grafningshreppi.
Í Öndverðarnesi er fallegur 18 holu golfvöllur, umsjónarmaður starfar á svæðinu allt árið og sér um snjómokstur og sundlaug sem er til afnota fyrir eigendur sumarhúsa í hverfinu.
Húsið er timburhús byggt árið 2016, skráð alls 108,5m2 að stærð og stendur á 5.000 m2 leigulóð.
Að innan skiptist húsið í forstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús auk svefnlofts sem er yfir hluta hússins.
Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er góður fataskápur. Stigi upp á milliloft er í holi við forstofu.
Herbergin eru öll parketlögð og eru fataskápar í tveim þeirra.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er góð sturta, innrétting og hurð út á sólpall.
Stofa og eldhús eru í opnu og rúmgóðu rými. Loft er upptekið og flísar eru á gólfi. Falleg innrétting með eyju er í eldhúsinu, í stofu er útgegnt á sólpall.
Svefnloft er paketlagt og er það allt í opnu rými en möguleiki er á að stúka niður herbergi. Milliloftið er að hluta undir súð en tveir kvistir eru á húsinu og eru yfirbyggðar svalir á öðrum en fallegt útsýni er frá efri hæð hússins.
Milliloftið er skráð 19,3m2 en gólfflötur er um 36m2 undir súð .
Stór sólpallur með skjólveggjum og heitum potti er við húsið
Þvottahús er í sérhús sem er um 8m2 og er það flísalagt og með góðri innréttingu. Húsið er ekki skráð inn í heildarstærð eignarinnar.
Geymsluskúr með steyptri plötu er við húsið og er hann mjög snyrtilegur. Húsið er ekki skráð inn í heildarstærð eignarinnar.
Lóðin er mjög falleg með miklum og viðhaldslitum gróðri.
Stór malarborin innkeyrsla er við húsið.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.