Kringlumýrarvegur 6

805 Selfoss

Ásett verð: 52.500.000 kr.

Kringlumýrarvegur 6
Tegund
Sumarhús
Stærð
74,7000003814697 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2007
Fermetraverð
702.811 kr.

Lýsing

Kringlumýrarvegur í landi Norðurkots i Grímsnes-og Grafningshreppi. Hitaveita, lokað svæði.

Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Kringlumýrarveg í Grímsnes-og Grafningshrepp. Um er að ræða 55,1 fm sumarhús ásamt 19,6 fm tvískiptu húsi sem er geymsla/gestahús eða samtals 74,7 fm samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Auk þess er eitt gróðurhús á lóðinni og dúkkuhús. Í þessu húsi er hitaveita og steypt plata með gólfhita og einnig lokað ofnakerfi. Það á einnig við gestahúsið. Lóðin er 2.340 fm eignarlóð skógi vaxin.

Lýsing á eign: Hol með flísum á gólfi, fatahengi og góðu skápaplássi. Tvö herbergi með parketi á gólfi, annað herbergið með litilli forstofu þar sem hægt er að ganga út á suður sólpall. Baðherbergi með flísum á gólfi, fallegri hvítri innréttingu og sturtu. Stofan er L-laga með flísum á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhús með flísum á gólfi, viðarinnréttingu með ofni, helluborði með tveimur hellum og uppþvottavél. Stór eldhúskrókur. Allir gluggar og hurðir eru úr harðviði (maghóní).

Geymsla: Áföst gestahúsi, steypt plata með hitalögn í gólfi.

Gestahús: Alrými með flísum á gólfi og eldhúskrók. Baðherbergi. Gólfhiti.

Steyptir sökklar liggja á milli aðalhúss og gestahúss og því auðvelt að byggja þar á milli. Teikning af skála þar á milli er til.

Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur.

Á lóðinni er gróðurhús .

Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.

Þetta er falleg eign og vel um gengið hús. Góð aðkoma og næg bílastæði.

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Akstur frá Reykjavík ca. 50 mínútur.

Upplýsingar gefa:

Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is

Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400 , netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is