Sóltún 17

311 Borgarnes

Ásett verð: 83.900.000 kr.

Sóltún 17
Tegund
Einbýlishús
Stærð
145,399999237061 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
577.029 kr.

Lýsing

FastVest fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: Sóltún 17, virkilega fallegt og vel við haldið einbýlishús með fjórum svefnherbergjum á stórri lóð með fallegri fjallasýn móti suðri.

Húsið er 145,4 fm. timburhús á einni hæð að meðöldum 36,3 fm.bílskúr.

Einnig eru á lóð tveir geymsluskúrar, annar er c.a.4 fm og hinn c.a. 10 fm, báðir tengdir rafmagni.

Engin skipulögð byggð er sunnan við húsið með óspillta náttúru og mikilli fjallasýn.

** Skoða skipti á eign á höfuðborgasvæðinu ** Sex inngangar í húsið

Gólfhiti

Ljósleiðari

Nýr varmaskiptir frá 2024

Aukatafla rafmagn fyrir heitan pott, sauna og litlu húsin

Tengi og lagnir til staðar fyrir heitan pott

Parket sett á geymslu 2023

Húsið málað að utan 2024

Þak málað 2025 og þakrennur yfirfarnar

Nýtt parket á alrými 2024

Ný borðplata á eldhúsinnréttingu 2024

Ný blöndunartæki 2025

Bílskúr breytt í herbergi 2024

Innra skipulagi hefur verið breytt og hluti bílskúrs nýttur sem herbergi (auðvelt að breyta til baka), eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Forstofa: er með parketi á gólfi.

Alrými: Stofan og eldhúsið mynda bjart og rúmgott rými þar lofthæð er tekin upp.

Eldhúsið með innréttingu, borðkrókur, úr eldhúsi og stofu er útgengi út á lóðina.

Baðherbergi: Fallegt baðherbergið, flísalagt í hólf og gólf, ágætur skápur, salerni, baðkar.

Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með sérsmíðuðum skáp með lýsingu, innfelldur að hluta og parket á gólfi.

Svefherbergi II: Rúmgott herbergi og parket á gólfi.

Svefnherbergi III: Rúmgott herbergi með parket á gólfi.

Svefnherbergi IIII: Hluti af bílskúr, rúmgott herbergi og parketi á gólfi.

Þvottahús: Þvottahúsið er ágætlega rúmgott, útgengi út á lóðina.

Geymsla: Hurð út í bakgarð, gluggi og parket á gólfi.

Inngangur: Áður gönguhurð í bílskúr, gangur þaðan sem hægt að ganga inn í þvottahús, herbergi í bílskúr og geymslu. Úr þvottahúsinu er gengið inní bílskúrinn sem búið er að breyta og hluti nýttur sem herbergi (auðvelt að breyta til baka).

Glæsilegt útsýni, rúmgóð lóð og sveitasælan bókstaflega við túnfótinn. Hvanneyri er í 15 mínutna akstursfjarlægð frá Borgarnesi þar sem hægt er að nálgast alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir:

Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali fastvest@fastvest.is / sími 861-4644

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. FastVest með þér alla leið